framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er, eins og kom fram hérna áðan, hugsi yfir efni þessa frumvarps. Ég átta mig ekki alveg á hvað felst í þessum breytingum. Það verður ekki ráðið af texta frumvarpsins, enda er líka verið að fela þarna ráðherra heimild, sem ég held að hann hafi að einhverju leyti nú þegar, til að útfæra þessa þætti í samstarfi við skólana. En ég velti fyrir mér og hef kannski áhuga á að fá það fram frá hv. þingmanni sem er nú eftir allt fulltrúi stjórnarmeirihlutans inni í allsherjar- og menntamálanefnd og samflokksmaður hæstv. mennta- og barnamálaráðherra: Hvað felst í þessari sýn um að ákveðnir framhaldsskólar, að einhvern veginn sé ætlunin að girða fyrir möguleika þeirra á að taka inn nemendur á grundvelli þess sem mér líður eins og hv. þingmaðurinn lýsi eins og sé eitthvert einhæft mat í stað þess að vera fjölbreytt mat? Ég hygg að þetta einhæfa mat sem um ræðir hjá þessum umtöluðu framhaldsskólum, og ef við segjum bara sem svo að þetta séu þessir eftirsóttustu bóknámsskólar, sé ekki lagt á frammistöðu nemendanna að ástæðulausu. Það er vegna þess að námið í skólanum snýst um þá þætti sem verið er að líta til í innrituninni. Þannig að eins og ég sé þetta frumvarp þá sé öllu heldur verið, frekar en að útvíkka heimildir skólanna til að taka inn eftir ákveðnum þáttum, að búa til nýjar kvaðir á skólana og nýjar hugmyndir á grundvelli, já, alls konar hugmyndafræði sem þarna er verið að lýsa, frekar en að gera þeim auðveldara fyrir að vinna vinnuna sína, sem er að framleiða úrvalsnámsmenn. Það er það sem við ætlumst til af skólunum okkar. Þó að auðvitað sé þetta jöfnunartæki sem menntakerfið er sannarlega mikilvægt á ýmsum sviðum og ýmsum þáttum starfseminnar þá getur það ekki ráðið í einu og öllu t.d. innritun og öllum þáttum starfsins. Mér líður eins og hér sé verið að innleiða (Forseti hringir.) þessa hugsun á fleiri og fleiri stig og ég sé ekki hvernig það, með fullri virðingu, á að geta bætt þann árangur sem við erum að tala um að sé ekki nógu góður. Þannig að ég forvitnast (Forseti hringir.) um það hjá hv. þingmanni: Hver er raunverulega hugsunin um breytingar gagnvart þessum framhaldsskólum?