framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka enn á ný hér við upphaf ræðu minnar hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur fyrir svörin. Að sönnu virðumst við vera á öndverðum meiði um grundvallaráherslur í menntamálum. Þar er auðvitað bara gott að vera sammála um að vera ósammála endrum og eins, eins og við erum stundum í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég tel hins vegar og ég ítreka það að ég er sannarlega ósammála þeirri grundvallarsýn sem hér er borin á borð, að í ljósi þess að margvísleg fjölbreytni í samfélaginu og annað eins í ýmsum þáttum mannlífsins hafi aukist sé þar með eðlilegt að hverfa frá gamaldags, eins og þeim er lýst, kröfum um gæði náms, af því að gæði náms hafa látið á sjá í íslensku menntakerfi á undanförnum árum og undanförnum áratugum og sú þróun er í fullum gangi. Hún er ekki að snúast við, hún hefur öll merki þess að vera sífellt að versna. Og hvernig bregðumst við við því? Hvaða úrræði höfum við sem stjórnvald til að bregðast við því? Jú, við getum fallist á að með breyttum tímum verði árangurinn öðruvísi eða við getum sagt: Hér þarf einhvern veginn að endurskoða nálgunina og við þurfum að halda áfram að gera kröfur vegna þess að eins og ég hef lýst í þessum ræðustól áður þá verðum við að hafa það í huga að t.d. í niðurstöðum PISA-kannana, sem leiða þessar hálfgerðu hörmungar í ljós sem hafa átt sér stað í menntakerfi og árangri nemenda, er ekki aðeins verið að fjalla um árangurinn hjá þeim sem eru þarna bara í þessu meðaltali, það er ekki aðeins verið að fjalla um það. Við erum líka með „öfgarnar“ báðum megin, þ.e. þá sem gengur hvað verst og svo þá sem gengur hvað best, og um leið og þú ferð að sjá mun lakari — af því að þegar ég talaði hérna um úrvalsnemendur eða einfaldlega þá sem ná framúrskarandi árangri, sem hv. þingmaður er eitthvað viðkvæmur fyrir að tala um, en það er líka hluti af heildarárangri skólakerfisins og það er það sem hífir upp meðaltalið okkar vegna þess að þrátt fyrir allt, og eins illa það hljómar og hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þá erum við að horfa á meðaltöl. Við erum að horfa á meðalárangur nemenda. Til að hann aukist til muna þurfum við sannarlega að lyfta þeim upp sem gengur hvað verst, halda áfram að bæta árangurinn heilt yfir hjá stóra fjöldanum en svo einnig að hafa tækifæri til að taka þá sem skara fram úr og gefa þeim tækifæri til að nýta krafta sína til hlítar og þeir eiga það ekkert síður skilið þeir sem standa lakar. Það er einfaldlega þetta margumtalaða einstaklingsmiðaða nám sem við erum að ræða daginn inn og daginn út í allsherjar- og menntamálanefnd og á vettvangi menntamála almennt í samfélaginu.
Ég verð að segja að við að sjá þetta frumvarp um framhaldsskóla þá fæ ég ekki séð að þar sé verið að nokkru leyti að mæta þeim áhyggjum sem ég hef lýst í sambandi við þetta nýja samræmda námsmat. Við höfum sagt þar: Ef það er svona ljóst öllum sem það vilja heyra að hér sé um að ræða einhvers konar samræmd próf, eins og manni er sagt þegar maður segir: Bíddu, er þetta samræmt próf? Þá er sagt nei. En stundum er sagt: Já, þetta eru samt samræmd próf, þetta er alveg eins og samræmdu prófin. Þannig að sama fólk talar illa um samræmdu prófin, og ég veit að þau voru ekki gallalaust verkfæri, síst af öllu, heldur því samt í varnarskyni fram í tengslum við þetta frumvarp að þetta séu þó samræmd próf að einhverju leyti. Ég spurði í grein sem ég skrifaði: Hvers vegna getum við þá ekki kallað samræmd próf samræmd próf ef þau eru svona mikil samræmd próf? Maður hefur ekki heyrt svar frá þeim sem bera ábyrgð á þessu máli í því efni þannig að við göngum út frá því, því miður, að við munum ekki, almenningur, foreldrar, kennarar að hluta til, nemendur — að það verður ekki sú upplifun, alla vega framan af, við innleiðingu þessara samræmdu matstækja innan þessara matsglugga og með þeim ágöllum sem hefur verið bent á — eða maður þarf ekkert endilega að kalla þá ágalla en það eru þættir við eðli þessarar framkvæmdar sem vekja upp spurningar um það hvort niðurstaðan verði raunverulegt samræmt mat.
Nú á að svara þessu máli í tengslum við framhaldsskólann, ef maður lýsir því nákvæmlega hvað er verið að ræða um — framhaldsskólarnir búa við það að geta ekki tekið inn nemendur á grundvelli annars en einfaldlega skólaeinkunna, og skólaeinkunnir eins og rannsóknir sýna, vísindi — ja, við erum nú að tala um menntamál þannig að við verðum að vera nákvæm þannig að ég veit ekki hvort ég get sagt vísindalegar rannsóknir, en rannsóknir og athuganir hafa leitt það í ljós að það er og ríkir einhver verðbólga á milli skóla. Þegar þessu er afneitað, sem mér finnst mjög forvitnilegt ef fólk velur að gera það, þá þarftu ekki nema að tala við nokkra nemendur í einhverjum skóla og þeir munu lýsa fyrir þér nákvæmlega hvernig landið liggur í þessu: Í þessum skóla er mjög auðvelt að fá háa einkunn, í þessum skóla ómögulegt. Þessi skóli á landsbyggðinni er svona, þessi skóli í borginni er svona. Ekki aðeins er þetta heldur líka skoðanakannanir meðal nemenda þar sem verulegur hluti nemenda segir að það sé ekki samræmi í einkunnum. Þannig að sannarlega er það kyndugt þegar fólk kemur síðan upp í ræðustól eða í fjölmiðla og afneitar þessum veruleika. Það er það sem við köllum gaslýsingu.
En gott og vel, það er veruleikinn þegar framhaldsskólinn er að taka inn að það er samkeppni, sama hvað okkur finnst um það. Það er samkeppni um að komast inn í þessa skóla. Samkeppni er auðvitað alltaf hörð. Hún er ekki alltaf sanngjörn, ekki alltaf falleg, en ég held að hún dragi að einhverju leyti líka fram kosti fólks þegar það er að klára grunnskóla. Það vill leggja sig fram um að fara þarna inn og sýna árangur og fá umbun fyrir árangur. Ég held að það sé, eins grimmilegt og það kann að hljóma fyrir einhverjum sem er mjög djúpt sokkinn í þennan félagslega marxisma sem einkennir mikið af okkar umræðum um þessi menntamál, góður hvati og ég held að ég segi bara hreint út að það sé bara ágætur hvati.
Það sem framhaldsskólarnir standa frammi fyrir er að þeir geta ekki gert þetta með sanngjörnum hætti. Þess vegna hefur fólk bent á og sagt fullum fetum að nemendur njóti ekki jafnræðis. Þetta er líka í sambandi við samræmd próf, við höfum ekki upplýsingar um stöðu einstakra skóla. Það eina sem við vitum er að þeir eru ekki allir að ná sama árangri. Það er það sem vitum en það liggur ekki fyrir nákvæmlega með hvaða hætti það teiknast upp. Þetta er ágalli sem við erum að benda á. Þetta er tiltölulega einfaldur ágalli. Menntaskólar geta ekki tekið inn með sómasamlega sanngjörnum hætti. Nú kemur frumvarp frá hæstv. menntamálaráðherra, sem ég hefði alveg áhuga á að fá hingað upp í andsvör ef hann getur það og gert aðeins grein fyrir því hvernig hann telur að þetta muni hjálpa framhaldsskólum við að taka inn nemendur vegna þess að það er sannarlega vandamál. Í Verzlunarskólanum hefur m.a. verið rætt um að taka upp inntökupróf í skólann. Vegna þess að skólarnir fá ekki samræmdar einkunnir úr skólum hefur verið rætt um að taka inntökupróf. Ég veit ekki hvar þær viðræður standa en sú staðreynd að þær fari fram er auðvitað lýsandi fyrir ástandið. Ég velti fyrir mér hvort það gæti kannski orðið þá línan hjá eftirsóttum skólum að vera með inntökupróf en þá erum við komin með aukalag sem maður veltir fyrir sér hvort grunnskólarnir gætu ekki sinnt með betri hætti en mögulega er það bara leiðin fram á við. Að vísu fyndist mér það kannski ekki beint í samræmi við vilja stjórnvalda sem eru hérna með skýr markmið. Maður getur lesið þau upp úr frumvarpi hæstv. ráðherra, með leyfi forseta:
„Í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi ásamt öðru er lagt til að ákvæði laganna um innritun í skóla verði endurskoðuð og skýr afstaða tekin til þess að heimilt sé að líta til annarra sjónarmiða en námsárangurs við innritun nemenda í framhaldsskóla. Lagt er til að heimilt verði að byggja á fleiri atriðum sem tengjast nemandanum en námsárangri hans. Hér er t.d. átt við upplýsingar um þátttöku og árangur í óformlegu námi, félagsstarfi og íþróttum og upplýsingar sem varpa ljósi á áhuga nemandans, t.d. hvort viðkomandi skóli sé fyrsta eða annað val hans.“
Ég held nú að þegar sé tekið tillit til þess. Svo segir, með leyfi forseta:
„Þá er lagt til að heimilt verði að líta til sjónarmiða sem tengjast skólasamfélaginu, þ.m.t. til að vinna gegn einsleitni í nemendahópum. Hér er t.d. átt við að við innritun sé heimilt að líta til kyns, að aðrar reglur gildi um námsárangur þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og taka tiltekinn fjölda nemenda með langvarandi stuðningsþarfir inn í skóla.“
Hér hljómar, eins og með að taka tiltekinn fjölda nemenda með langvarandi stuðningsþarfir í skóla, eins og það sé verið að búa til einhvers konar kvóta gagnvart þeim málum, að það verði heimilt að taka inn á grundvelli kyns, sem mér skilst reyndar að skólar geri nú þegar, að það séu kynjakvótar einhvers staðar til að jafna hlutföllin og ég held að það sé í raun og veru drengjum í hag, þ.e. að drengjum sé hleypt inn til að jafna hlutföllin og þar séu þeir ekki að komast inn að verðleikum heldur sem svokallaðir kvótapiltar. Þetta er gert í framhaldsskóla, hef ég heyrt. Ég veit ekki hvort það sé við lýði einmitt núna en mér finnst umræðan frekar vera í samfélaginu, í alþjóðasamfélagi, hvort sem það er í tengslum við menntun eða störf eða annað, um að hverfa aftur til þess að líta einmitt til verðleika við svona mælikvarða eins og inntöku í skóla, að líta einfaldlega til að hætta að flækja lífið með því að blanda öðrum þáttum eins og hérna er verið að mæla fyrir um að skólarnir geri, alla vega að veita þeim sérstaka heimild í lögum til þess og svo veltir maður fyrir sér hvort þeir verði hvattir til þess að líta til þessara mælikvarða sem hér er verið að tala um, kyns og einsleitni og annars eins. Mér finnst frekar að umræðan sé í þá átt að horfa einkum til verðleika vegna þess að það er einfaldlega árangursríkara mat fyrir kerfið að vera ekki að, eins og hér er lagt upp með — það mætti lýsa því sem að mismuna fólki eftir alls konar ytri þáttum í stað þess að hafa kerfið bara sannarlega kalt en sanngjarnt, þ.e. einkunn ræður því hvort einhver kemst inn eða ekki. Ég er ekkert sannfærður um að það sé endilega eina lausnin. Mér líður samt eins og sú hugmynd sé að einhverju leyti að farast fyrir hérna. Við erum auðvitað að tala um námsárangur og það er ekki að ástæðulausu sem framhaldsskólar vilja halda í sín kerfi til að taka inn vegna þess að þeir hafa reynslu af því að fá síðan inn nemendahóp, svo leggja þau á hann kröfur og það gengur misvel eftir því hversu vel undirbúið fólk er. Það er eftir allt það sem er verið að horfa til.
Þetta eru sannarlega lög um framhaldsskóla í víðum skilningi. Það eru margir þættir sem er verið að taka til. Það er einn þáttur sem vakti sérstaka athygli mína og ég vakti athygli á því í umfjöllun í fjölmiðlum í gær og á félagsmiðlum, breytingu á ákvæði um að nemendum beri að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks. Því er laumað inn þarna í nýjum lögum að núna beri nemendum — það var ekki í gömlu lögunum, þetta er nýtt — að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í öllu því er skólann varðar, þar á meðal í starfi á vegum nemendafélaga framhaldsskóla. Þetta er nýtt ákvæði, að núna sé nemendum skylt að fylgja fyrirmælum skóla og kennara í starfi á vegum nemendafélaganna. Ég fjallaði aðeins um það í gær að þetta kemur mér að hluta til spánskt fyrir sjónir. Mér finnst forvitnilegt að menn og ráðuneytið og síðan hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin þar með hafi endilega áhuga á að taka á þessu. Ég hefði áhuga á að vita það frá hæstv. ráðherra á hvaða grunni þetta er gert og hvaðan þetta sprettur. Er ákall um þetta af hálfu skólanna, að ná betri stjórn á nemendafélögum?
Ég rifjaði það upp að við í nemendafélaginu í þeim framhaldsskóla sem ég var í vorum t.d. með útgáfustarfsemi, skólablað, og ég minnist fleiri en eins og fleiri en tveggja tilvika, hvort sem það var í tengslum við skólablöðin eða aðra starfsemi, að það urðu svona vægir og kurteislegir árekstrar við skólastjórnendur. Þeir hafa sína skoðun á því hvað nemendafélögin eru að gera og vildu hafa svolitla stjórn á því, vildu t.d. lesa birt efni áður en það færi í loftið, áður en við færum með skólablöðin í prent. Ég fjallaði nefnilega síðan um þetta á samfélagsmiðlum í gær og kallaði eftir því að menntaskólanemendur lýstu fyrir mér hvernig þetta væri og mér er sagt t.d. í skóla sem er hér rétt hjá, það svaraði mér einn og hann lýsti því þannig að skólayfirvöld þar hefðu tekið býsna mikla stjórn á t.d. starfsemi nemendafélagsins Framtíðarinnar í Menntaskólanum í Reykjavík. Upphaflega var stofnað til starfsemi Framtíðarinnar í þeirri hugsjón að nemendurnir væru svolítið sjálfstæðir. Ég velti fyrir mér varðandi lögráða einstaklinga sem eru með nemendafélagsstarfsemi hvort hér séu ekki hreinlega sjónarmið uppi um tjáningarfrelsi þeirra nemenda, að þótt þeir séu í námi við ákveðnar menntastofnanir beri þeim að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í öllu sem varðar starf á vegum nemendafélags framhaldsskóla. Við erum með félagafrelsi, við erum með persónulegt tjáningarfrelsi einstaklinganna þannig að mér finnst ekki að við getum endilega sett svona ákvæði inn án þess að því fylgi einhver umræða um það hvað eigi að felast í þessu og ég lýsi bara yfir tilhlökkun að ræða þetta í hv. allsherjar- og menntamálanefnd þar sem þetta frumvarp — þannig að maður segi það líka hér, úr því að ræðutíminn er að klárast — á eftir að fá frekari umræðu þar og við þurfum að velta við ýmsum steinum í þessu. Ég verð að segja að við fyrstu sýn er þetta ekki alveg það töfrasvar við úrlausnarefnum menntakerfisins sem maður vonaðist til. Engu að síður tökum við þessu auðvitað með opnum hug og ræðum þetta bara ítarlega. — Að því sögðu segi ég það gott í bili.