framhaldsskólar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir áhugavert og fróðlegt erindi hér í pontu og vangaveltur um þætti sem ég hef haft mögulegar áhyggjur af líka í þessu frumvarpi. Hann átti hér orðastað við hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrr í þessari umræðu um afburðanemendur og einhverjir nefndu úrvalsfólk sem er nú kannski ekki orðalag sem við ættum að nota, en hver ræður sínu orðalagi. Það hefur komið í ljós að jöfnuður í íslensku menntakerfi er mjög mikill og þessu er flaggað bara hægri, vinstri. En því miður er hann allur á botninum, jöfnuðurinn er þar. Við liggjum bara á fyrstu tveimur, þremur hæfniþrepunum, þannig að jöfnuðurinn er í raun ekki góður þarna. Þarna myndi það vera ójöfnuður að hafa einhverja í efstu þrepunum. En þessu flagga menn í einhverju neyðarástandi í menntakerfinu sem einhverjum sterkum þætti.
Það sem mig langar að spyrja hv. þm. Snorra Másson er hvort hann hafi einhverjar lausnir á þessu þar sem hann er nú nokkuð yngri en ég og ekkert langt síðan hann kláraði sitt framhaldsskólanám. Sér hann eitthvað í þessu frumvarpi til að fjölga afburðanemendum? Er eitthvað í frumvarpinu sem lyftir upp hópi nemenda sem standa sig sérlega vel, því að við tölum mjög mikið um nemendur sem standa sig ekki nógu vel?