framhaldsskólar.
Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir góða spurningu. Ég held að þetta sé umræða sem við verðum að taka þótt sannarlega geti hún reynst í einhverjum skilningi „viðkvæm“. Viðkvæmar umræður hafa tilhneigingu til að vera mikilvægustu umræðurnar í okkar samfélagi.
Hv. þingmaður talaði hérna um orðavalið og ég átta mig vel á því að auðvitað ber að forðast að skilja eftir þá tilfinningu að með umræðum um afburðanemendur eða úrvalsnemendur eftir því hvernig menn líta á þá, ég held að afburðanemendur sé sannarlega prýðilegt orð um þetta, að með umræðu um þessa þætti sé þar með ekki verið að tala fyrir því að taka eitthvert fólk út fyrir sviga og gefa því einhverja sérmeðferð eða gera því eitthvað sérstaklega hátt undir höfði eða setja það upp á einhvern stall. Þar með er bara verið að tala um að það er sannarlega hluti af og eitt tannhjólið í gangverkinu. Og sannarlega tannhjól, ef við viljum einmitt halda þessum meðaltölum hærri má tannhjólið ekki bresta.
Hins vegar þá merki ég af hálfu hv. menntamálayfirvalda, kannski í víðum skilningi, t.d. fulltrúum ráðuneytis sem við höfum fengið fyrir allsherjar- og menntamálanefnd, í umræðum við fólk úr menntasamfélaginu í tengslum við þetta, að það er talað með svona kannski eilítið þreytulegum tóni t.d. um þessa elítuskóla. Sannarlega er samkeppni um inngöngu í þessa vinsælustu framhaldsskóla og sannarlega er sjálfsagt að lýsa þeim sem elítuskólum í einhverjum skilningi. Hins vegar eru þetta gífurlega mikilvægar menntastofnanir á Íslandi og að tala eins og í þessum þreytulega tóni: Á grunnskólakerfið bara einhvern veginn að — eins og hæstv. fyrrverandi menntamálaráðherra lýsti því einhvern tímann hérna, að þetta væri bara spurning um að einhverjir skólar vildu fleyta rjómann af þessu, svona eins og þeir hirtu ekki um restina og sótsvarta alþýðuna heldur vildu bara (Forseti hringir.) fá einhverja elítu til sín. Þetta er engan veginn það sem vakir fyrir þessum skólum eða fólkinu sem þar starfar. Þar er bara einlægur metnaður um að gera vel og mér finnst það ekki gott (Forseti hringir.) ef umræðan um það verður að einhverju leyti að einhverju vandamáli, að það megi ekki ræða um þennan þátt. Ég held að það sé sannarlega mikilvægt og ég þakka hv. þingmanni þess vegna fyrir þessa góðu spurningu.