framhaldsskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir mjög gott svar við andsvari mínu. Með leyfi forseta, langar mig að lesa hér upp úr frumvarpinu og biðja hv. þm. Snorra Másson að velta því fyrir sér hvort hér sé verið að þrengja innritunarreglur eða víkka. Þetta er sem sagt úr frumvarpsdrögunum:
„Við ákvörðun um innritun nemanda er heimilt að líta til sjónarmiða sem tengjast nemandanum, þ.m.t. námsárangurs úr grunnskóla og annarra upplýsinga sem nemandinn lætur skólanum í té, og sjónarmiða sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla […]“
Þetta á að auka fjölbreytni í nemendahópnum. Þetta er í frumvarpinu en í lögunum sem eru í gildi núna stendur um innritun:
„Hver framhaldsskóli ber ábyrgð á innritun nemenda, [en í samningi skóla og ráðuneytisins skv. 44. gr. skal kveðið] sérstaklega á um skyldur einstakra framhaldsskóla við innritun“ og skólar ráða því sjálfir hverjar forsendurnar eru sem þeir leggja til grundvallar við innritun nemenda.
Skólarnir hafa í raun fullt frelsi í lögum núna að setja öll þau viðmið sem þá langar. Er það útvíkkun á innritunarreglum að telja hér upp einhvers konar lista sem menn geta farið eftir eða þá að hafa það alveg opið eins og það er í lögum núna? Hvað finnst þm. Snorra Mássyni um þetta?