framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen enn á ný fyrir ágæta fyrirspurn. Við fyrstu sýn tek ég undir með hv. þingmanni, að frekar en að verið sé að auka svigrúm framhaldsskóla sé öllu heldur verið að bæta inn skilyrði sem ætlast er til af þeim að þeir líti til, frekar en að það sé verið að segja að þeim sé sjálfrátt um þetta, eins og virðist vera í núgildandi lögum. Þannig að það er óneitanlega forvitnilegt fyrir mig og fyrir hv. þingmann að sjá frumvarp sem boðað var að myndi leysa mikið af þeim vandamálum sem við höfum lýst í tengslum við samræmda námsmatið, að þetta komi. Ég verð að segja að maður furðar sig að hluta til á því, maður rifjar upp ummæli sem maður hefur fengið frá fólki innan úr kerfinu: Viljum við að skólarnir, þessir elítuskólar, séu bara eitthvað að taka inn bestu nemendurna? Við viljum það ekki, finnur maður að er hljómurinn úr kerfinu. Ég átta mig á því að það geta verið félagspólitískar, samfélagslegar, kennslufræðilegar ástæður fyrir slíkri sýn. Ég efast um að sú sýn sé endilega til framfara fallin fyrir menntakerfið en ég skil alveg hvaðan hún sprettur. Ég átta mig vel á því. Ég fatta nákvæmlega hvað menn eru að fara með þessu en ég lýsi hins vegar efasemdum um að með þessu eigi á einhvern hátt að þrengja að framhaldsskólum um það hvernig þeir taka inn frekar en að einmitt gefa þeim frelsi til að gera það með þeim hætti sem þeir telja líklegast til að auka árangurinn í skólanum. Það er óneitanlega undarleg nálgun.