framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp og góða yfirferð hér áðan á því. Ég tek hér til máls undir umræðu um frumvarpið sem markar mikilvæg skref í áframhaldandi þróun framhaldsskólastigsins á Íslandi. Með þessu frumvarpi er ekki verið að endurskrifa allt kerfið heldur að styrkja það sem þegar hefur verið byggt upp af fagmennsku. Hér er verið að tryggja að lögin og stjórnsýslan fylgi þeirri jákvæðu þróun sem þegar á sér stað í skólastarfi og stuðla að því að skólarnir geti brugðist við breyttum aðstæðum, nýjum þörfum og fjölbreyttum hópi nemenda með sveigjanleika og metnað að leiðarljósi. Þetta frumvarp er fyrir nemendur sem þurfa að vita að námsbrautir þeirra séu vandaðar og viðurkenndar, fyrir kennara og skólameistara sem vilja hafa svigrúm til nýsköpunar og faglegt mat án þess að þurfa að bíða vikum saman eftir formlegri staðfestingu fyrir framhaldsskólana sem hafa sýnt að samvinna geti skilað sér í auknum gæðum og fjölbreyttara námi, m.a. á landsbyggðinni þar sem þeir hafa þegar sýnt samstarf í verki.
Þetta frumvarp er fyrir vinnumarkaðinn sem þarf öflugt starfsnám, gott vinnustaðanám og vel menntaða einstaklinga sem eru tilbúnir til að takast á við störf framtíðarinnar. Hér er verið að gera umgjörð ferilbókar skýrari en hún er þegar farin að gefa góða raun. Í frumvarpinu er lagt til að hverfa frá því að staðfesta námsbrautalýsingar í Stjórnartíðindum. Í stað þess komi viðurkenning ráðherra, sem er bæði skjótvirkari og skilvirkari leið sem felur þó áfram í sér skýrt, faglegt mat. Þetta er mikilvæg breyting fyrir framhaldsskóla um allt land. Í skólunum er unnið faglegt starf við þróun námsbrauta sem mæta þörfum nemenda og samfélaga. En þegar ferlið við að staðfesta slíkar brautir dregst í marga mánuði eða ár þá dregur það úr þróun og sveigjanleika. Þetta frumvarp bætir úr því án þess að slaka á gæðakröfum.
Sérstök áhersla er lögð á að styrkja lagastoð fyrir samstarf milli framhaldsskóla. Eins og ég nefndi áðan hefur samstarf milli framhaldsskóla á landsbyggðinni þegar reynst vel og er gott. Skólar hafa sameinast um að kenna námsbrautir, nýtt fjarnám, deilt þekkingu og jafnvel mannskap á fjölbreyttan hátt. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þegar slíkt samstarf hefur veruleg áhrif á reksturinn þurfi samþykki ráðherra og umsögn skólanefndar. Það tryggir gagnsæi, ábyrgð og aðkomu nærsamfélagsins. En að sama skapi er frumvarpið stuðningur við þá skýru framtíðarsýn sem margir skólar vinna þegar eftir.
Frumvarpið tekur á vinnustaðanámi og starfsnámi sem er mikilvægur hlekkur á milli skólakerfisins og atvinnulífsins. Framhaldsskólar beri að skýra ábyrgð á gerð, staðfestingu og eftirfylgni með vinnustaðasamningum, ferilbók. Það er ekki nóg að nemandinn finni sjálfur fyrirtæki, skólinn þarf að tryggja að samningurinn sé gerður og að gæðin séu til staðar og að öryggi og réttindi nemandans séu virt. Ég vil taka fram að ferilbók fyrir vinnustaðanám er þegar komin í notkun. Með stafrænni ferilbók sem nemendur og vinnuveitendur eiga að nota til að skrá þjálfun og framvindu hefur verið stigið jákvætt skref fram á við en hún leysir gömlu námssamningana af hólmi. Þetta styður við ábyrgð, gagnsæi og raunverulegt námsmat í stað- og starfsnámi.
Frumvarpið fjallar líka um réttindi og skyldur nemenda um innritun og hvernig við bregðumst til að mynda við einelti, ofbeldi og vanlíðan í skólum. Lögð er áhersla á lausnamiðað samtal, stuðning og einstaklingsmiðaðar leiðir áður en gripið er til viðurlaga, en á sama tíma er mikilvægt að hafa skýrar reglur um hvað má og hvað má ekki. Lagt er til að skólum verði heimilt að líta til fleiri þátta en námsárangurs við innritun, svo sem áhugasviðs og aðstæðna nemenda til að tryggja fjölbreytni í nemendahópi. Við viljum að öll hafi jöfn tækifæri, líka þau sem þurfa stuðning, þau sem hafa annað móðurmál en íslensku eða hafa ekki alltaf fengið að blómstra í hefðbundnu námi. Þetta frumvarp styður við það markmið.
Virðulegi forseti. Frumvarpið sem hér er lagt fram styður við þróun sem þegar á sér stað í skólakerfinu. Það er ekki róttækt heldur raunhæft. Það byggir á reynslu kennara, stjórnenda, nemenda og atvinnulífsins. Þetta er frumvarp sem horfir til framtíðar en byggir á þeim góða grunni sem við höfum. Það einfaldar ferli, skýrir ábyrgð, styrkir tengingar og styður við áframhaldandi þróun skóla á öllum landshornum. Við höfum þegar séð glöggt dæmi um góðan námsárangur, hvort sem litið er til öflugra iðn-, verknáms- eða bóknámsskóla fyrir austan, sunnan, vestan eða norðan. Það er hlutverk okkar hér í þessum sal að hlúa að þessu starfi, búa því lagalegan grunn sem styður við fólk en hindrar það ekki. Ég tel þetta frumvarp einmitt gera það. Ég vona að hv. þingmenn muni styðja frumvarpið og um leið styðja við sterkara, skilvirkara og sanngjarnara menntakerfi.