framhaldsskólar.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér breytingu á lögum um framhaldsskóla. Eins og ég skil þetta mál þá er þetta að einhverjum hluta bara skýringarmál. Hér er t.d. verið að taka inn hluti sem fyrir eru í reglugerð og festa undir þá lagastoð. Ég var hér áðan að spyrja hæstv. ráðherra aðeins í andsvörum um það er laut að vinnustaðanáminu og ég var aðeins að velta fyrir mér hvort þetta þýddi eitthvað meira, en samkvæmt svörum hæstv. ráðherra, ef ég skildi hann rétt, þá væri það í rauninni ekki breyting frá því sem nú er heldur væri fyrst og fremst verið að byggja undir þetta lagastoð. Ég bara beini því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að huga líka aðeins að ákvæðinu sem ég spurði hæstv. ráðherra út í er lýtur að greinargerðinni um 11. gr. þar sem hægt væri að heimila ráðherra að fela öðrum skólum en þeim sem nemandi stundar nám við eða öðrum aðila að sjá um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafa eftirlit með þeim. Ég er ekki að segja að ég sé mótfallin þessu, alls ekki, en finnst þetta, virðulegur forseti, áhugaverð pæling en líka mikilvægt að það sé góður rammi utan um þetta.
Hér er verið að einfalda þessar námsbrautarlýsingar og samkvæmt því sem maður les í greinargerðinni þá er mjög æskilegt að gera það og ég get stutt þá hugmyndafræði. Ég vildi þó nefna hér að ég hef svolitlar áhyggjur af námsbrautarlýsingum og námsbrautum sem kosta meiri peninga. Það er auðvelt að vera með bóknámsbrautir og þær kosta oft minna fjármagn en alltaf þegar kemur að einhverju verknámi eða einhverju öðruvísi þá kostar það meira fjármagn og það hefur oft verið mikill barningur. Ég tala hér af smá reynslu, hafandi verið í bæjarstjórn í Mosfellsbæ og verið að styðja við uppbyggingu framhaldsskólans í Mosfellsbæ þar sem barist var mikið fyrir því að fá inn reiðbraut. Vegna þess að Mosfellsbær státar af góðu hestamannafélagi og mjög öflugum hestaíþróttum þá fannst okkur gullið tækifæri þegar þessi nýi skóli var byggður upp að vera með þá sérstöðu að bjóða upp á námsbraut í því til stúdentsprófs. Ég bara náði því miður ekki að afla mér upplýsinga um það hvort sú námsbraut væri enn í boði eða ekki en hún hefur alla vega verið í miklum barningi við að fá fjármagn til þess að halda áfram. Þannig að ég vil bara beina því til hæstv. ráðherra að huga aðeins að því að það eru oft þessar námsbrautir sem eru engu að síður mikilvægar, kosta meira fjármagn og eru samt, eins og færð voru rök fyrir þegar þessi námsbraut var sett upp í FMOS, ofboðslega mikilvægar, því að þó að hestamennska sé kannski hjá flestum áhugamál þá er líka íslenski hesturinn útflutningsvara og ferðaþjónusta í kringum íslenska hestinn, tamningar og annað þess háttar er stór og mikil atvinnugrein og þar af leiðandi mikilvægt að geta byggt undir þá atvinnugrein með góðu námi.
Ég vil minnast á annað hér því að ég held að við höfum öll, virðulegur forseti, fengið tölvupóst frá Smára Stefánssyni, verkefnisstjóra fjallamennskunámsins við FAS. Hv. þm. Halla Hrund Logadóttir fór í óundirbúna fyrirspurn við hæstv. dómsmálaráðherra til að spyrja út í þetta nám sem varðar fjallamennsku og er kennt þarna á Austurlandi og hefur verið að fá góðan hljómgrunn og skiptir auðvitað ofboðslega miklu máli út frá öryggi í jöklaferðum og ferðaþjónustunni og þetta er líka braut sem virðist hafa verið í miklum barningi við að halda lífi. Miðað við það bréf sem okkur barst í gær eða fyrradag þá virðast þau ekki hafa náð eyrum mennta- og barnamálaráðuneytisins. Ég hvet hæstv. ráðherra til að skoða það. Ég heyrði hér að hæstv. dómsmálaráðherra tók þessu jákvætt og talaði einmitt um það hversu mikilvægt væri að við værum að tryggja öryggi. Ferðaþjónustan er okkar stærsta atvinnugrein þannig að þetta hlýtur að skipta máli. Ég segi þetta ekki síst vegna þess að eins og ég hef sagt hér áður er undir þessum lið — nú man ég ekki hvort það er 20 eða 22 í fjármálaáætluninni, framhaldsskólarnir — 2,5 milljarða hagræðingarkrafa. Ég ætla ekki að tala gegn hagræðingu, manneskja sem vill að það sé farið vel með ríkisfé, en á sama tíma vitum við að það er þörf fyrir að bæta við í iðn- og tækninám. Það kostar meira. Við vitum að það er verið að byggja nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði. Það er verið að stækka við í Breiðholtinu. Það eru samningar um slíkt, held ég, á Sauðárkróki og hvort það er á Ísafirði líka og mögulega á fleiri stöðum á landinu þar sem nauðsynlega þarf að bregðast við og byggja upp kennsluaðstöðu fyrir verk- og iðnnám og það kostar, þannig að það hlýtur þá að þurfa að hagræða enn frekar til þess að ná utan um þessa mikilvægu fjárfestingu. Ég er hér líka að nefna hluti sem kosta, dýrar námsbrautir, þannig að ég átta mig á því að það er krefjandi verkefni sem bíður hæstv. ráðherra í þessum efnum.
En ég verð að viðurkenna, og ég geri ráð fyrir því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd muni skoða það vel, að það er mjög gott að það sé hægt að einfalda einhvern veginn stjórnsýsluna á bak við það að búa til námsbrautarlýsingar og breyta þeim. Það er ekki hægt, eins og því er lýst í greinargerð, að skólar hafi hreinlega ekki ráðist í það vegna þess að það sé of mikið vesen eða taki of mikinn tíma. Auðvitað þurfa þessar námsbrautir að þróast í takt við tímann og það sem ég var að nefna hér, þessar tvær námsbrautir, er líka einmitt í takt við það sem skortur er á úti í atvinnulífinu og okkur finnst mikilvægt að byggja undir. Þar af leiðandi horfir maður kannski sérstaklega til þess og það segir skýrt í þessu frumvarpi að þessu sé ekki beint með neinum hætti gegn einkareknum skólum eða gegn slíkum brautum. Það er eitthvað sem við þurfum að huga vel að því að í gegnum tíðina hafa slíkir skólar og slíkar námsbrautir átt mjög erfitt uppdráttar þannig að ég hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að huga vel að því.
Síðasti liðurinn sem mig langaði að nefna er þetta varðandi 14. gr. sem mér þykir vera, hvað eigum við að segja, býsna sérstakur lagatexti. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom inn á það held ég í andsvari áðan, þetta hljómar svolítið eins og skólareglur. Ég veit ekki hversu mikið og hversu eðlilegt það er að skrifa þetta inn í lagatexta. Við fyrstu sýn finnst mér það a.m.k. mjög sérstakt þannig að ég beini því líka inn til hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Ég viðurkenni að ég heyrði ekki hæstv. ráðherra færa endilega góð rök fyrir því að það eigi að vera hér í einhverjum lagatexta þó að við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að skólar hafi tæki og tól til að takast á við óæskilega hegðun. Í einhverjum hlutum var vísað raunverulega til ólöglegrar hegðunar og þá eru til önnur lög og rammi utan um það þannig að það er ekki gott yfirleitt í lagasetningu að vera með einhvers konar annars konar ramma utan um sambærilega hluti. Ég myndi líka beina því til nefndarinnar að huga aðeins að þessum þætti.
Að því sögðu held ég að hér sé bara um gott mál að ræða en það er mikilvægt að nefndin fari vel yfir það og tryggi að alla vega þessir þættir sem ég hef hér nefnt komist með einhverjum hætti til skila.