framhaldsskólar.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að fara yfir þetta frumvarp hér fyrr í dag. Í því er margt gott að finna. Sjálfur sit ég í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við munum taka þetta frumvarp til skoðunar og ræða okkar á milli. En ég set sérstaklega spurningarmerki við 14. gr., hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir minntist líka á það áðan að þar á ansi ítarlega að fara að setja skólareglur í lög og eitthvað sem finna má í skólareglum, sumt af því tengist jafnvel bara hegningarlögum þannig að við þurfum að skoða þetta vandlega.
Þarna er komið bæði inn á skólasókn og námsárangur, sem getur alveg verið ágætt fyrir nemendur að fá tiltal út af. En það sem ég geld ákveðinn varhuga við er það að starf á vegum nemendafélaga framhaldsskóla, að það sé komið inn í lög um að skólinn hafi mikið og allt um það að segja. Á þessum tíma eru unglingar að verða fullorðnir og ég held að þar ættum við frekar að takast á um t.d. greinar í skólablöðum eða einhvers konar atburði eða viðburði sem nemendafélögin standa fyrir og í stað þess að vera með þetta í reglum að viðhorfin í skólunum séu þannig að nemendur hafi ekki áhuga á að mögulega brjóta af sér. Þetta finnst mér alla vega svona umhugsunarvert. En það kemur ekkert inn um réttindi nemenda á móti. Þarna er þó nokkrar klausur um skyldur nemenda og ábyrgð og ég held að það hefði þá verið viskulegt að taka réttindin fyrir líka þannig að jafnræðis væri gætt.
Ég hef sjálfur unnið í unglingadeildum skóla í áratugi og þykist kannast við þennan texta í 14. gr. þar sem er verið að setja þessar ítarlegu reglur. Mín reynsla úr heimi regluverksins er sú að ef það er eitthvað óæskilegt sem er í gangi þá eru reglur ekki endilega það líklegasta sem kemur í veg fyrir það, heldur er það að ráðast að rót vandans og breyta viðhorfum og skoðunum. Það er líka eitthvað sem dugar til miklu lengri tíma heldur en nokkurn tímann reglur.
Það kom fram í máli hv. þm. Höllu Hrundar Logadóttur fyrr í dag, það voru óskemmtilegar upplýsingar sem hún bar á borð fyrir þingheim sem hún hafði frá Barnaheill, að mörghundruð ungmenni á grunnskólaaldri eru þvinguð til einhvers konar kynferðismaka. Þetta eru reyndar nýjar og óhugnanlegar upplýsingar fyrir mig þrátt fyrir að hafa verið í þessu kerfi lengi. Auðvitað eiga að vera reglur um að þetta eigi ekki að vera en samt gerist þetta. Þetta er svona kannski dæmi um það: Eigum við að ítreka reglurnar eða eigum við að vinna í viðhorfum og grunninum, rót þessa vanda sem á sér stað þarna?
Þess vegna finnst mér stundum svona reglusetning veita ákveðið falskt öryggi. Það er búið setja reglur og þá eru málin bara komin í lag. Þú getur þvegið hendur þínar af málinu, reglurnar segja þetta. Mér finnst það sérstaklega vera þegar við erum að tala um börn, þegar framheilinn er ekki þroskaður og þau eru vís með að brjóta reglur og gera mistök og eiga í raun að gera mistök í grunn- og framhaldsskóla, mistök sem þau læra þá af, mistök þroska, átök þroska. Ef maður á í átökum við einhvern og kemur út úr því vígur en ekki óvígur þá þroskar það mann. Ef maður tekst aldrei á við eitt eða neitt þá staðnar maður í þroska. Það er eitt af því sem ég held að íslenskt skólakerfi og bara íslenskir foreldrar almennt mættu taka til sín, að leyfa börnum sínum að takast á við hluti, að fara ekki í gegnum lífið án nokkurra átaka, að ryðja ekki brautina eins og snjóplógur fyrir íslensk börn. Ég held að við hefðum öll gott af því og ég bara veit það að félagsfærni eykst ef þú lendir í útistöðum við jafningja og þarft að leiða þau mál til lykta sjálfur. Ég er ekki að tala um einhverja stórkostlega atburði, að við hjálpum ekki í þeim tilvikum, en almennar smáskærur manna á milli eru eitthvað sem við þurfum að geta leitt til lykta og um leið þá þroskumst við. Þess vegna eru reglur oft þannig, svo ég ítreki það, falskt öryggi. Við höldum að við séum búin að girða fyrir vandann með reglunum en það gerist samt, samanber það sem hv. þm. Halla Hrund Logadóttir nefndi varðandi þetta í grunnskólanum.
Það þarf að breyta hegðun og viðhorfi, það er langtímalausn. Að setja íþyngjandi reglur er að stytta sér leiðina frá A til B vegna þess að á þessum aldri sem nemendur eru í framhaldsskólum þá eru þeir enn þá skilgreindir sem börn að langmestu leyti. Þess vegna þarf að vera virkt samtal og það þarf bara að leggja það í hendur þeirra sérfræðinga sem eru að vinna í skólunum að eiga þetta virka samtal í stað þess að negla niður á blað einhverja punkta um hvað sé bannað og hvað ekki. Það fríar okkur ekki sem fagmenn frá því að eiga samtalið.
Lykillinn að því að farið sé eftir góðum gildum samfélagsins er að skólabragurinn eða skólamenningin sé þess eðlis að allir í skólanum, hvort sem það eru starfsmenn, nemendur og mögulega foreldrar sem koma að starfinu, rói í sömu átt, að allir séu í sama liði. Ef það næst fram góður skólabragur — og vel að merkja þá er skólabragur hér grein í lögum um framhaldsskóla. Ég sakna þess hreinlega að skólabragurinn í þessu frumvarpi sé ekki ávarpaður sterkar, hann er í raun ekkert ávarpaður í frumvarpinu. Þannig að ég hefði viljað fá miklu sterkari meldingar um það að skólabragurinn skipti öllu máli. Í þessari grein um skólabrag í gildandi lögum kemur fram, með leyfi forseta: „Hver skóli skal setja sér skólareglur og birta þær í skólanámskrá.“ Hvers vegna þarf þá að vera með í lagatexta reglur um nemendafélög? Ef nemendafélög virka ekki við skóla, ef nemendur geta ekki borið ábyrgð á félögunum, þá þarf held ég eitthvað annað heldur en reglur til að laga það.
En aftur að skólabrag sem skiptir svo miklu máli. Rannsóknir sýna það að góðu skólabragur eykur námsárangur, bætir líðan, fjárhagsstaða skóla batnar, foreldrar eru ánægðari, veikindi starfsmanna eru minni. Það er í raun allt jákvætt við góðan skólabrag. Hann er í raun undirstaða góðs skólastarfs en ekki einhverjar reglur sem tiltaka einhverjar ákveðnar afleiðingar: Ef þú gerir þetta þá gerist þetta. Þetta kann kannski að hljóma einkennilega í eyrum einhverra en mín reynsla er algerlega sú að ef það næst góður skólabragur eða skólamenning þá verður allt skólastarf miklu, miklu betra.
Þarna ber að nefna bara starfsmenn framhaldsskólanna, alla starfsmenn framhaldsskólanna, hvort sem það er fólkið á skrifstofunni, skólastjórinn, kennararnir eða aðrir starfsmenn framhaldsskólans. Þeir skipta máli við að skapa þennan góða skólabrag. Góðir starfsmenn í framhaldsskólum, sem og auðvitað grunnskólum og leikskólum og háskólum, eru í raun grunnstoðirnar innan hvers námssamfélags. Það er enginn skóli betri heldur en mannauðurinn í honum. Þess vegna skipta ráðningar inn í framhaldsskólann óheyrilega miklu máli. Við þurfum að hafa valinn mann í hverju rúmi til þess að skapa annan góðan skólabrag og minnka líkur á því að eitthvað óæskilegt eigi sér stað og auka líkur á því að námsárangur og líðan sé góð.
Ég hef séð góðan kennara ná þannig tökum á hópnum sínum að nemendur eru farnir að líta á þennan kennara sem aukaforeldri, tengslin við kennarann sinn. Þetta er algerlega hægt og ég held að margir hv. þingmenn hér í salnum geti tengt við þetta þegar þeir rifja upp tengsl sín við góða kennara á sinni skólagöngu, bestu kennarana sína. Eru þeir hv. þingmenn líklegir til að brjóta gegn þessum kennara? Ég held að flestir svari því neitandi.
Þess vegna skipta þessi tengsl og skólabragur miklu meira máli heldur en nokkurn tíma einhverjar reglur sem síðan er verið að lögfesta. Ég hef séð góðan skólaliða, almennan starfsmann skóla, ná þannig tengslum við nemendahópa að nemendur leita til hans til að ræða sína ástarsorg eða fjölskyldumissi eða skilnað foreldra sinna. Þvílík verðmæti sem eru fólgin í þessu starfsfólki því að það eru ekki bara kennararnir sem skipta máli til að mynda þennan góðan skólabrag heldur allir starfsmenn skólans.
Og svo eru það húsverðirnir. Þetta eru oft karlmenn, ekki alltaf, sem hafa langa reynslu af alls konar handverki og það eru margir nemendur sem standa kannski ekki sterkt félagslega, finna sér skjól meðal þessa fólks, húsvarða, þeirra sem starfa á göngum, því að þetta fólk er alltaf á göngunum tilbúið að ræða við nemendur, þ.e. ef þetta starfsfólk er gott og ef stjórnendur skólans hafa lagt það fyrir að þetta sé stefna skólans. Það er ekki stefna skólans að starfsmenn fari í símann sinn inni í kompu þegar nemendur eru á vappi á göngunum. Stefnan er að allir starfsmenn taki þátt í því að mynda skólabrag.
Þetta getur sparað milljónir á milljónir ofan, bætt námsárangur og aukið á velferð og velsæld nemenda. Það er nefnilega alls konar sem gerist í skólum. Skólar eru samfélög þar sem nemendur hittast, stunda sína vinnu, upplifa sorgir og sigra. Fólkið sem er í skólunum er eitt það mikilvægasta í okkar samfélagi. Þess vegna myndi ég vilja fá inn í þetta frumvarp meira tal um góðan skólabrag og minna tal um reglur.