framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir góða ræðu. Hann vék í máli sínu talsvert að starfsfólki skólanna, allt frá húsverðinum og til kennaranna og þeirra mikilvægu hlutverka sem þetta fólk gegnir í sínum störfum. Ég vildi kannski grípa þann bolta aðeins á lofti af því að það var sérstaklega vikið að kennurum og spyrja hv. þingmann út í hvort hann hafi kynnt sér ályktun fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara frá 7. apríl síðastliðnum, en þar segir í ályktuninni, með leyfi forseta:
„Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara mótmælir harðlega sparnaðaráformum ríkisins á framhaldsskólastiginu sem birtast í fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðherra fyrir árin 2026–2030. Áætlunin gerir ráð fyrir meira en 5% niðurskurði á tímabilinu til framhaldsskólastigsins.
Áform um svo harkalegan niðurskurð til málaflokksins eru í besta falli undarleg í ljósi þess að von er á fjölmennum árgöngum inn í framhaldsskóla landsins á næstu fimm árum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Á næstu tveimur árum eru líkur til þess að nemendum fjölgi hér um bil um 650 nemendur, sem samsvarar einum meðalstórum framhaldsskóla.“
Vissulega er ályktunin lengri og ítarlegri en ég vildi gjarnan spyrja hv. þingmann út í það hvernig þetta kallast á við það sem hann var að lýsa varðandi andrúmsloftið í skólasamfélaginu, andrúmsloftið hjá kennurum, nemendum, og hvort það er hætta á því að þessi áformaði niðurskurður geti hreinlega smitað inn í þetta andrúmsloft skólasamfélagsins.