framhaldsskólar.
Frú forseti. Hv. þingmaður vék hér í ágætu svari sínu að m.a. iðn- og tækninámi. Í því samhengi langar mig að grípa niður á öðrum stað í sömu ályktun og ég vitnaði hér í fyrra andsvari mínu, með leyfi forseta, en þar segir:
„Stefnt er að því að fjölga nemendum í iðn- og verkgreinum en það nám er mun dýrara en annað nám. Einnig er ráðgert að koma í ríkara mæli til móts við sífellt fjölbreyttari nemendahóp hvað varðar tungumála- og menningarbakgrunn, námsstöðu og sérþarfir, meðal annars með aukinni íslenskukennslu og öðrum farsældarstuðningi.“
Niðurlag ályktunarinnar hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Félag framhaldsskólakennara leggur fast að fjármála- og efnahagsráðherra ásamt ríkisstjórninni allri, fjárlaganefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og öllum þingmönnum að tryggja að framhaldsskólastigið verði fjármagnað sómasamlega á næstu árum svo að einhver von sé um að metnaðarfull stefna stjórnvalda í málaflokknum til ársins 2030 nái fram að ganga.“
Hér er í þessari ályktun kristölluð og formuð mjög eindregin áskorun og krafa á hendur framkvæmdarvaldinu sem er í algerum samhljómi við það sem hv. þingmaður nefndi hér áðan varðandi iðn- og tækninám sem við vitum öll að er dýrt per nemanda. Það er ekki endilega dýrt nám, það er bara dýrt per nemanda á meðan á námi stendur því að þetta nám skilar sér mjög ríkulega aftur til samfélagsins í verðmætasköpun svoleiðis að það má halda því fram að námið sem slíkt sé ekki svo dýrt þegar á heildina er litið.