framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég vil enn og aftur þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir sína framsögu og málið sem hér er til umræðu. Þetta er frumvarp um breytingu á lögum um framhaldsskóla, mál sem hefur verið í undirbúningi um árabil og tekur auðvitað til fjölmargra þátta sem skipta máli fyrir menntakerfið allt og þar erum við að tala um viðurkenningu námsbrauta, innritun, vinnustaðanám, samrekstur, réttindi og skyldur nemenda og faglegt sjálfstæði skóla. Það eru góðar forsendur þarna inni, þetta á auðvitað að auka skilvirkni sem er mikilvægt, það á að samræma reglur og einfalda viðurkenningarferli og styðja við fjölbreyttari nemendahópa.
Ég get sagt það að sumt í þessu frumvarpi er jákvætt og í rauninni löngu tímabært. En það sem vantar, virðulegi forseti, má kannski segja, er skýr sýn. Það er skortur á skýrri sýn á það hvernig við ætlum að þróa framhaldsskólastigið áfram í framtíðinni. Frumvarpið gengur í meginatriðum út á það að laga það regluverk sem við höfum í dag en maður veltir fyrir sér hvort við séum að undirbúa kerfi fyrir framtíðina, hvort við séum að skapa svigrúm til þróunar og nýsköpunar og líka bara sveigjanleika.
Mig langar í ljósi þessa líka að tæpa á ályktun sem við þingmenn fengum senda í dag frá Félagi framhaldsskólakennara sem hélt fund nýlega. Þar sátu fulltrúar allra framhaldsskóla landsins ásamt stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd félagsins. Þar var samþykkt einróma ályktun þar sem var harðlega mótmælt sparnaðaráformum ríkisstjórnarinnar í garð framhaldsskólastigsins. Á næstu tveimur árum er gert ráð fyrir því að nemendum fjölgi um tæplega 650 sem samsvarar einum meðalstórum framhaldsskóla og samhliða þessari fjölgun þá stendur til á sama tíma að skera niður framlög til skólastigsins, skólastigs sem hefur þegar þurft að mæta fjölbreyttari nemendahóp með auknum þörfum fyrir íslenskukennslu og aðlögun og stuðning, þannig að þetta er mér algjörlega óskiljanlegt. Þetta er einnig í algjörri andstöðu við menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030, þar sem sérstaklega er lögð áhersla á aukna þátttöku í iðn- og starfsnámi, félagslegt réttlæti og jöfnun aðgengis. Og þó svo að lögð sé áhersla á þessi markmið er ljóst að engin viðbótarfjármögnun fylgir, í rauninni bara þvert á móti. Ég hvet þingheim til að standa vörð um framhaldsskólastigið og tryggja að öll ungmenni fái nám við hæfi og í anda þeirrar stefnu sem hefur verið samþykkt hér í þinginu. Þetta á sér auðvitað líka beina tengingu við lögbundið hlutverk framhaldsskólanna, þ.e. að bjóða nám við hæfi og styðja við farsæld og velferð allra nemenda um allt land.
Virðulegi forseti. Við stöndum líka á vissum tímamótum sem samfélag og bara í heiminum, ekki bara vegna lýðfræðilegrar þróunar eða fjölbreyttari nemendahópa heldur vegna þess að við erum líka að ganga inn í vissa tæknibylgju sem mun gjörbylta atvinnulífi og menntun á næstu tíu árum. Við erum að sjá gervigreind, stafrænar lausnir, sjálfvirkni og vistvæna tækni sem er að móta samfélag okkar í rauninni á algerlega nýjan hátt. Ég get ekki séð að það sé neitt rými fyrir slíka þróun í þessu frumvarpi, að það sé hægt að taka þátt í þessari þróun fyrir skóla. Það þarf í rauninni að vera skýrt að með aukinni miðstýringu og auknum valdheimildum ráðherra og formfestu, eins og við erum að sjá í þessu frumvarpi, getur skapast hætta á því að við stöðvum þróun í stað þess að styðja við hana. Það þarf meira svigrúm til þess að geta mætt þessum samfélagslegu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir en ekki þrengja að. Við ættum að mínu mati að nota þetta frumvarp hér sem tækifæri einmitt til að skoða samninga varðandi frekari þróunarverkefni í framhaldsskólunum þar sem hægt væri að prófa nýjar námsleiðir, nýtt samstarf við atvinnulífið sem hefur m.a. verið að bjóða fram sína krafta, blandaða kennslu og auka notkun tæknilausna í kennslu og matsaðferðum.
Frumvarpið gerir líka ráð fyrir að framhaldsskólar geti átt með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta. Slíkir samningar skuli staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefndar, sem er góð byrjun. En ég held að við getum gert enn betur og vil leggja til hér við hv. allsherjar- og menntamálanefnd að við skoðum sérstaklega þá möguleika sem felast í nánara samstarfi á milli framhaldsskóla og háskólasetra í þeim sveitarfélögum sem þær stofnanir eru og þar sem báðir aðilar starfa, t.d. á Akureyri, við getum horft á Ísafjörð og ég veit að það er líka á Selfossi og örugglega víðar. Einmitt í slíkum byggðarlögum má skapa raunverulega samlegð með sameiginlegum þáttum. Það er hægt að horfa á aðstöðuna, það er hægt að skoða námsleiðir sem tengja saman þessi tvö stig og nýta fræðslugetu starfsfólks, þennan mannauð sem við höfum á þessum báðum stigum. En þá þurfum við auðvitað vettvanginn, lagarammann, að hann geri ráð fyrir því og styðji við slíkt samstarf. Ég tel að það væri í rauninni skref í átt að mun sveigjanlegra og virkara menntakerfi.
Virðulegi forseti. Ég vil einnig nefna sérstaklega vinnustaðanámið sem frumvarpið gerir að verksviði framhaldsskólanna. Þeir eiga að bera ábyrgð á gerð, staðfestingu og eftirfylgd samninga við meistara, fyrirtæki eða stofnanir og það er mikið ábyrgðarhlutverk og eðlilegt að skólarnir hafi það. Þeir axla það hlutverk örugglega ansi vel en á sama tíma er hvergi fjallað um hvernig þeir eiga að fá aukinn stuðning eða starfsfólkið og hvað þá fjárveitingar til að sinna þessu nýja hlutverki. Það má segja með alla þætti þessa frumvarps að það er verið að leggja til meiri ábyrgð og fleiri verkefni en það er ekki gert ráð fyrir neinu aukafjármagni. Þetta gerist í rauninni á sama tíma og fjármálaáætlun til ársins 2030 gerir ráð fyrir niðurskurði upp á 5% til framhaldsskólastigsins. Þetta er verulegt ósamræmi, virðulegi forseti. Á sama tíma og við erum að leggja fram frumvarp sem á að styrkja hlutverk framhaldsskólanna og faglega ábyrgð þeirra og útvíkka samvinnu þeirra við atvinnulífið og aðra skóla þá sjáum við í fjármálaáætlun að það eigi að gera þetta með mun minna fé.
Hæstv. ráðherra kom inn á það áðan að það ætti að hagræða í kerfinu og eftir mitt samtal við skólameistara framhaldsskóla víða um land þá heyri ég bara að það eru mjög miklar áhyggjur yfir þeirri þróun sem á sér stað núna og enn meiri eftir að við sjáum hvernig fjármálaáætlun lítur út, eða miðað við þær litlu upplýsingar sem koma fram í fjármálaáætlun, og hvaða áhrif það mun hafa á framhaldsskólastigið. Skólarnir hafa miklar áhyggjur af þessu. Þeir segja að það sé búið að skera alveg inn að beini, það er búið að taka allt kjöt af beinunum og þeir sjá ekki fyrir sér hvar er hægt að hagræða meira nema það komi niður á þjónustunni. Eðlilega veltir maður því fyrir sér hvar hæstv. ráðherra sér fyrir sér einhvern niðurskurð til þess að geta mætt stöðu þessara framhaldsskóla. Ég veit að fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra hafði verulegar áhyggjur af fjárveitingum til framhaldsskólastigsins og var að berjast fyrir því að fá aukna fjármuni. Ég veit ekki hvernig hann hefði brugðist við ef hann hefði séð þessar tölur sem liggja núna fyrir og ætlun nýrrar ríkisstjórnar.
Það má líka nefna hagræðingartillögurnar sem unnar hafa verið af svokölluðum hagræðingarhópi sem starfað hefur á vegum stjórnvalda. Þar voru uppi hugmyndir um verulegar breytingar á rekstrarformi framhaldsskólanna, verulegar breytingar. Það var talað um sameiningar hugsanlega, eitthvað loðið, breytingar á dreifingu námsframboðs, jafnvel tilfærslu verkefna frá einstökum skólum til annarra og það sem meira er; breytingar á fjármálalíkani skólanna. Ég veit að skólameistarar og kennarar á framhaldsskólastiginu eru allir opnir fyrir auknu samstarfi og aukinni samvinnu en hins vegar vara þeir við niðurlagningu skóla eða sameiningu vissra skóla. Ég held að það sé líka bara vegferð sem var hætt við á síðasta kjörtímabili, blessunarlega. En það þarf að leita annarra leiða og þetta er það sem við höfum svolítið áhyggjur af. Við vitum í rauninni ekki í dag hverjar af þessum tillögum verða raunverulega teknar upp. Við vitum ekki hvort hlustað verði á skólasamfélagið. Það sem við vitum samt er að ef tillögurnar verða samþykktar án skýrra markmiða og án fjárhagslegs stuðnings þá hefur það í för með sér gífurlega kerfisbreytingu með áhrifum á starfsumhverfi, launakerfi, nemendaþjónustu og ekki síst sjálfstæði þessara skóla.
Ég velti því fyrir mér: Hér er verið að leggja fram frumvarp og við vitum ekki hver áform ríkisstjórnarinnar eru varðandi hagræðingu. Við vitum ekki hvort hún ætlar að taka upp þessar tillögur sem komu frá hagræðingarhópnum sem mér hrýs hugur við, ég verð að segja eins og er. Ég held að það sé afar mikilvægt að við þingmenn fáum þessar upplýsingar fram til þess að við getum m.a. tekið afstöðu til mála eins og þessara því það er óábyrgt af okkur að vera að samþykkja eitthvað sem er íþyngjandi og eykur í rauninni verkefni framhaldsskólanna þegar við vitum að það á að vera 5% niðurskurður á þessu stigi. Það er ekki verið að bæta í eins og hæstv. ríkisstjórn boðaði landsmönnum. Við þurfum aðeins að sjá hverjar eru grunnstoðirnar og hvernig á að styrkja þær og í rauninni fara fram á það að hagræðingartillögur og framtíðarsýn fyrir málefnið verði kynnt fyrir a.m.k. allsherjar- og menntamálanefnd þannig að nefndin hafi upplýsingar um það hvað sé raunverulega hægt að gera og hvað ekki.
Þetta frumvarp felur í sér vissulega tækifæri en líka áskoranir og við þurfum aðeins að vara okkur á því að vera ekki að samþykkja eitthvað sem mun í rauninni festa okkur í fótsporum fortíðarinnar frekar en að feta ný fótspor inn í framtíðina þannig að það sé gert ráð fyrir þróun, það sé gert ráð fyrir nýsköpun og samstarfi, sérstaklega núna þegar ný tæknibylgja og hröð samfélagsbreyting kallar einmitt á sveigjanlegt og framtíðarmiðað menntakerfi.
Ég vil hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd að skoða að frumvarpið verði bætt með ákvæðum um þróunarrými fyrir skólana með einhvers konar samningum eða stuðningi við námsleiðir og tæknivæðingu, það verði a.m.k. skoðað. Það verði líka komið á formlegum vettvangi fyrir samstarf á milli framhaldsskóla og háskólasetra í þessum byggðarlögum sem ég taldi upp hér áðan og eflaust fleiri sem ég taldi ekki upp sem koma til greina. Þetta frumvarp verði sett í samhengi við fjármálaáætlun og hagræðingartillögur og við fáum kannski upplýsingar um hvar eigi raunverulega að hagræða. Það kom fram í máli hv. þm. Jóns Péturs Zimsen þar sem hann vitnaði í svar hæstv. ráðherra við andsvari mínu um hvar væri hægt að finna fjármögnunina, að það var verið að vísa í varasjóð. Ég get ekki séð betur en að það sé búið að taka 20 milljarða úr varasjóðnum nú þegar í verkefnið þannig að það eru 20 milljarðar eftir. Við vitum að það þarf ekki mikið út af að bregða til þess að allt fari á hvolf hvað varðar fjármálaáætlun og fjármálastefnu. Það er tollastríð í heiminum. Ég vara við því að við ætlum að seilast í einhvern varasjóð, sem er reyndar orðinn töluvert minni en hann var fyrir nokkrum vikum síðan til að fjárfesta og bæta við fjármagni. Það þarf að finna aðrar leiðir. Það sem ég hef áhyggjur af er að það eru fleiri málaflokkar heldur en menntamálin sem þurfa fjármagn. Ég er fullviss um að það sem eftir er í þessum varasjóði mun ekki duga til þeirra verkefna sem raunverulega þarf að ráðast í. Þannig að ég held að það sé mikilvægt að við látum hljóð og mynd fara saman og tryggjum það að orðum fylgi aðgerðir og að aðgerðirnar séu fjármagnaðar.