156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[20:39]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir virkilega góða ræðu. Hv. þingmaður sýnir að hann hefur góða innsýn inn í menntakerfið og skilur þetta allt saman mjög vel. Orð á blaði gera í rauninni ekkert nema vera orð á blaði. Til að þau virki sem slík til þess að bæta samfélagið og menntakerfið þá þarf að vera hægt að framfylgja þessum orðum og því sem skrifað er. Ég heyrði áhyggjur hv. þm. Ingibjargar Isaksen af því að hér færi ekki saman hljóð og mynd. Hér væri texti þar sem væru boðuð fleiri verkefni, fleiri nemendur inn í framhaldsskólakerfið, fjölga nemum í verk- og tækninámi. Þetta eru útgjaldafrekir liðir sem alla jafna myndu kalla á útgjöld. Við vitum að skólarnir sem stofnanir eru ekki þannig að fitulagið á þeim sé mikið, fita til að skera. Þetta eru grunnstoðir samfélaganna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sjái einhverja glætu til hagræðingar til að mæta öllum þeim verkefnum sem þetta frumvarp boðar. Ég læt þetta duga til að spara tíma.