156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[20:41]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir andsvarið. Í raun er það þannig ef við horfum á stóru myndina að það er alveg sama hvaða málaflokka þú horfir á: þegar við erum að setja inn aukin verkefni þá þurfum við að gera ráð fyrir því að það sé mannafli sem geti sinnt þeim og það séu fjármunir líka til þess að geta sinnt þeim. Það er tómt mál að setja inn einhverjar óskir, búa til óskalista, ef ekki fylgja fjármunir. Það sem ég benti á í mínu máli hér áðan var einmitt að ég veit að það skortir fjármuni inn í framhaldsskólakerfið. Viðbrögð t.d. Félags framhaldsskólakennara sýndu það strax hér í dag með ályktuninni sem var send á alla þingmenn, félagið hefur áhyggjur varðandi þróunina. Við sjáum líka að okkur er að fjölga mikið. Það er gert ráð fyrir að aukning nemenda verði í kringum 650 á næstu árum inn í kerfið þannig að það þarf miklu frekar að styðja við það heldur en að draga úr, ég tala nú ekki um þegar verið er að bæta við verkefnum.