framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir greinargott svar við mínu andsvari. Mig langar að höggva í sama knérunn og af því að ég veit að hv. þm. Ingibjörg Isaksen er, ég vil ekki segja landsbyggðartútta en hún er mikill landsbyggðarþingmaður, þá er ég nokkuð viss um að ég fari með rétt mál þegar ég segi að framhaldsskólarnir á landsbyggðinni eru dýrari í rekstri. Það eru oft fámennari skólar með meira af verknámi. Þetta eru meiri fjölbrautaskólar sem tengjast beint inn í atvinnulífið mögulega á staðnum þannig að það nám er dýrara. Ég sé fyrir mér einhverja vonda mynd þar sem niðurskurðarhnífnum er beitt og mögulega beitt fyrst á þá staði þar sem námið er dýrara og hver nemandi kostar meira. Það eru færri sem kannski lenda undir hnífnum. En án þess að vita það, af því að við fáum ekki að vita nákvæmlega út á hvað fjármálaáætlunin gengur, þá langar mig að spyrja hvort hv. þm. Ingibjörg Isaksen hafi sérstakar áhyggjur af landsbyggðinni með tilliti til þessa niðurskurðar sem er áformaður, í ljósi þess að skólarnir á landsbyggðinni, alla vega sumir hverjir, held ég alveg örugglega, eru dýrari í rekstri per nemanda heldur en stóru bóknámsskólarnir hér í borginni.