156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[20:44]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hér stendur stoltur landsbyggðarþingmaður í pontu Alþingis og stutta svarið er já. Ég hef verulegar áhyggjur af framhaldsskólunum á landsbyggðinni og ég hef bara áhyggjur af framhaldsskólastiginu í ljósi fjármálaáætlunar. Það sem eykur áhyggjur mínar enn frekari er að það er algerlega óljóst með hvaða hætti á að hagræða. Það er verið að tala um að það eigi að færa einhverja fjármuni, nýta fjármuni betur. Hvar á að nýta fjármuni betur? Með hvaða hætti á að nýta fjármuni betur? Ég veit ekki betur en að skólar, framhaldsskólar víða um land og allt land hafi verið að skera niður algjörlega inn að beini. Þeir sjá ekki neinar leiðir til að hagræða með neinum öðrum hætti en að draga úr þjónustu. Þegar horft er til framhaldsskólastigsins og framhaldsskólanna á landsbyggðinni þá er verið að vega algerlega að landsbyggðinni. Og þetta er ekki fyrsta málið sem þessi ríkisstjórn er að leggja fram þar sem er vegið að landsbyggðinni. Þar af leiðandi er afar mikilvægt að við höldum þessu á lofti og stöndum öll saman um að styðja við og styrkja framhaldsskólana okkar um allt land. Það er hagsmunamál fyrir okkur öll því að við jú byggjum framtíð okkar á þessu, framtíð landsins. Ég hef miklar áhyggjur af þessu og ég kalla eftir því að ríkisstjórnin sýni svolítið á spilin, sýni hvar hún ætlar raunverulega að hagræða til að við getum tekið málefnalega umræðu út frá því, út frá staðreyndum, út frá tölfræðinni og út frá markmiðunum.