framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar umræður og ætla svo sem ekkert að lengja þær mikið. Ég tek bara undir með hv. þingmönnum úr allsherjar- og menntamálanefnd eins og hv. þm. Jóni Pétri Zimsen sem fór ágætlega yfir það áðan að það sé margt gott í þessu máli en við þurfum kannski að passa okkur að ganga ekki of langt við að setja of miklar skyldur á nemendurna, bara að hafa frekar almennar skólareglur sem allir eiga að hlíta og skólabrag. Ég ætla ekki að fara djúpt í það en ég fann mig samt knúinn til að koma hér upp undir þessu ágæta máli þar sem frá því ég kom hér á þing fyrir um 12 árum síðan hef ég nefnilega verið í stanslausri baráttu við menntamálayfirvöld við að koma nýjum námsbrautum á legg með sjálfstætt starfandi skólum og opinberum skólum. Þetta hefur verið mikil þrautaganga og mikill slagur, það verður bara að segjast eins og er. Því fagna ég því að það sé komið frumvarp þar sem alla vega er sagt að verið sé að taka utan um þennan ágreining og þessi vafamál og annað sem hefur komið upp við að viðurkenna nýjar námsbrautarlýsingar og stofna nýja skóla og samstarf þeirra og allt þetta. Ég tel það gríðarlega mikilvægt og ég vildi koma hér og fagna því að hér sé komið frumvarp sem á að taka á þessu.
Ég vil beina því samt til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að hafa það í huga þegar hún fer að vinna þetta mál að spyrja gagnrýninna spurninga um hvort þetta sé nóg eða hvort það þurfi eitthvað annað að koma til, hvort sem er fjármagn, einhverjar aðrar reglur eða bara einhver pólitískur vilji eða hvað það er, til þess að hægt sé, hvort sem það er hjá nýjum sjálfstætt starfandi skóla eða bara innan opinberu skólanna, að stofna nýja námsbraut án þess að það taki mörg ár að fá námsbrautarlýsingarnar samþykktar, fá viðurkenningu á náminu og fá samning við mennta- og barnamálaráðuneytið um að þetta nám fari af stað.
Mig langar að taka eitt eða tvö dæmi. Fyrst er það Fisktækniskólinn í Grindavík sem var að vinna eftir nýrri aðferðafræði um að það þyrfti ekki alltaf að byggja upp iðnnám á hverjum stað heldur væri svona regnhlíf yfir fisktækninám á Íslandi, var að gera námslýsingar sem allir framhaldsskólar gætu nýtt sér og nemendaeiningarnar voru skráðar hjá þeim og svo gastu líka verið í staðnámi, bjó til nýtt nám sem var að mæta grunnatvinnuvegi þjóðarinnar innan fiskvinnslunnar og fór inn í laxeldi eða annað slíkt. Ef nemandi úr sjávarþorpinu ákvað að fara í smíðanám þá sköffuðu stjórnvöld honum nokkra framhaldsskóla þar sem hann gat sótt um þetta smíðanám og borgaði bara innritunargjald og smá efnisgjald. En svörin sem nemandinn fékk sem ætlaði að fara í Fisktækniskólann voru: Nei, það gengur sko ekki, þetta er að vísu grunnatvinnuvegur þjóðarinnar en þetta er bara sjálfstætt starfandi skóli og þú verður bara að borga skólagjöld. Ætlum við að fara að ákveða hvaða námsbrautir fólk fer á? Það tókst að gera alltaf samning og samning en það tók tíma og svo varðandi framhaldsnámið og annað svona. Þetta var allt mjög óljóst og núna er þetta að verða komið eftir 12 ára þrautagöngu í kerfinu.
Það er svipað að gerast núna hjá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Þar er ferðaþjónustan í algleymingi og það sveitarfélag sem hefur nýtt sér hvað mest Vatnajökulsþjóðgarð og hefur sett á fót fjallamennskunám — það var einhvern veginn eins og það væri alltaf í óþökk menntamálayfirvalda og skólinn næstum farinn á hausinn út af náminu og fær ekki þennan stuðning. Við þurfum að tryggja að það geti komið nýjar námsbrautir og þær geti komist á legg til að fylgja breyttu samfélagi, það er komin aukin ferðaþjónusta, komnar meiri gæðakröfur í fiskvinnslu, komið inn laxeldi og laxeldisvinnsla og allt þetta, að það sé hægt að stofna þessar námsbrautir og það sé til kerfi um hvernig er farið með reiknimódelið og það þurfi ekki að bíða ár eftir ár eftir því að fá samning við ráðuneytið og fá námsbrautirnar samþykktar.
Það var bara þetta sem ég vildi koma á framfæri og hvet hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að hafa í huga og líka hv. fjárlaganefnd og fyrst ég sé hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, mikinn Grindvíking, þá treysti ég því að hann taki þetta og hlusti á þetta líka og hef þetta ekki lengra hér. — Takk fyrir.