framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að vera langorður þar sem ég á víst að leysa hæstv. forseta af eftir nokkrar mínútur. Ég fagna því að við séum hér að ræða menntamál og þetta er ekki fyrsta þingmálið sem kemur fram sem gefur tilefni til djúprar og góðri umræðu um menntamál. Mér hefur oft fundist það svolítið vanta í íslenska pólitík almennt miðað við víða í okkar nágrannalöndum. Við erum líka heppin að vera hér með margt gott skólafólk, m.a. hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur sem var einmitt áður en hún var kjörin á þing skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands og sömuleiðis Jón Pétur Zimsen og sá sem hér stendur var að kenna í Menntaskólann á Akureyri þegar kosningar bar að garði.
Það er margt afar gott í þessu frumvarpi sem við erum hér að ræða. Ég fagna sérstaklega greinum í frumvarpinu sem kveða á um samstarf framhaldsskóla. Það hefur alfarið vantað. Stjórnvöld geta innan núverandi lagaramma stofnað skóla og lagt af skóla og svo er hægt að sameina skóla. Það er okkur heldur betur minnisstætt norður á Akureyri þegar mennta- og barnamálaráðherra í seinustu ríkisstjórn tilkynnti mjög skyndilega þau áform að sameina framhaldsskólana tvo á Akureyri með stuttum fyrirvara og að því er virtist eingöngu í þeim tilgangi að spara fjármuni. Þetta kom flatt upp á m.a. stjórnendur þessara skóla en þau voru mjög opin fyrir því að eiga með sér samstarf þar sem það væri möguleiki og yrði til bóta, m.a. í stoðþjónustu. En svarið virtist að mörgu leyti hafa verið bara: Nei, við ætlum að sameina ykkur. En hérna erum við að koma á laggirnar lagalegum ramma í kringum það hvernig skólar geta haft með sér samstarf. Ég er líka meðvitaður um það að þegar átti að sameina Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri þá voru margar minni stofnanir víða um land sem hugsuðu: Ef þetta eru ekki hagkvæmar einingar sem verður að sameina, hvað verður þá um okkur? Þannig að ég hugsa að þetta geti orðið mikið framfaraskref og verkfæri til að standa vörð um framhaldsskóla úti á landi sem eru minni einingar og standa vörð um það að börn hafi kost á því að sækja nám ekki of fjarri sinni heimabyggð og það sé fjölbreytileiki í námsleiðum úti um allt land.
Það hafa verið margar góðar ræður fluttar hérna í þessari umræðu og mér fannst mjög áhugaverður punktur frá hv. þm. Snorra Mássyni sem ég hafði ekki velt fyrir mér þegar ég las yfir frumvarpið, um þá grein að nemendur skuli hlýða fyrirmælum skólastjórnenda einnig í öllu starfi á vegum nemendafélaga. Ég, líkt og hv. þingmaður, var í framhaldsskóla fyrir ekki svo löngu síðan og það er mjög skiljanlegt að skóli geri ákveðnar kröfur til nemendafélaga og félagsstarfs. Þegar t.d. Gettu betur-lið skóla eru að keppa eða Morfís-lið þá eru þau andlit skólans og þurfa náttúrlega að vera honum til sóma en mér fannst það mjög góður punktur sem hv. þingmaður nefndi að þetta má ekki verða til þess að t.d. skólastjórnendum fari að ritskoða skólablöð sem eru gefin út af nemendum o.s.frv. Mér fannst það mjög áhugaverður punktur. Ég hlakka til að skoða þessi lög og frumvarpið í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem ég sit ásamt fleiri hv. þingmönnum og ég þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að koma hingað með þetta mál. Margt gott í þessu, annað sem við gætum þurft að skoða frekar og ég hlakka til að taka þátt í þeirri vinnu.