156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

framhaldsskólar.

282. mál
[20:58]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég held að flest okkar geti sagt að menntaskólaárin séu með skemmtilegustu árum okkar. (Gripið fram í: Heyr, heyr. ) Heyr, heyr, heyrist frá hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni. Ég hef nefnilega velt því fyrir mér og í kosningabaráttunni ræddi ég við og hitti mikið af nemendum í menntaskólunum í Norðausturkjördæmi, við héldum fundi með ungu fólki. Það kom mjög skýrt fram og það kom mér á óvart að það kom svo skýrt fram að það voru allir nemendurnir á því að þessi breyting að færa menntaskólann úr fjórum árum í þrjú væri í rauninni mistök. Þessir krakkar eru að fara á mis við mikið. Það er búið að þétta námið enn þá meira, það er verið að keyra það í gegn á þremur árum í staðinn fyrir fjórum þannig að þessir krakkar eru, og þau segja það sjálf og kennarar taka undir margir hverjir, að fara á mis við íþróttaiðkun og félagslíf og það er ekki síst þessi félagslegi þroski sem skiptir svo miklu máli á þessum árum. Að fara í gegnum þessi ár og hafa verið virkur í leikfélagi, ræðuliði eða öðru félagsstarfi í menntaskóla er líklega ekki síðra veganesti fyrir þessa krakka heldur en einmitt það sem þau lærðu í skólanum sjálfum. Það að koma út úr einhverri stofnun sem stúdent snýst líka um það að vera þroskaður einstaklingur. Ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að skoða, hvort þetta hafi verið mistök. Ég held að við ættum að gera á því einhvers konar rannsókn og könnun og kannski ættu bara ákveðnir skólar að bjóða upp á fjögurra ára nám og vera bara fjögurra ára skólar.

Varðandi það sem hefur verið rætt um í ræðum hér áður eru þessar nýju námsbrautir sem verið er að tala um sem hafa tekið svolítið mið af breyttu starfsumhverfi, breyttum áherslum. Þá langar mig sérstaklega að nefna Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu, fjallamennskunámið þar sem er gríðarlega mikilvægt nám fyrir þá sem ætla að að starfa í ferðaþjónustu og mennta sig í fjallamennskuleiðsögu. Þetta er orðinn stór iðnaður á Íslandi, mjög gjaldeyrisskapandi og að sama skapi verðum við að hafa sérmenntaða einstaklinga í þessu fagi. Í rauninni á alveg það sama við um hestabrautina í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Við skulum athuga það að við erum að flytja út hesta fyrir 2–3 milljarða á ári og hestamennska er stór iðnaður á Íslandi. Það gengur ekki að þessar námsbrautir séu alltaf í einhvers konar óvissu. Við verðum að fara að búa til einhvers konar umgjörð utan um þessar námsbrautir og þær eru fleiri eins og nefndar hafa verið hér af hv. þingmönnum þar sem við verðum að fara að búa til meiri fyrirsjáanleika og þetta sé ekki þannig að þær hangi á milli fjárlaga ár frá ári.

Hér hefur verið talað um boðaðan 2,5 milljarða kr. niðurskurð í framhaldsskólunum á næstu árum. Ég ætla að segja, virðulegur forseti, að fyrir mitt leyti þá finnst mér þetta svolítið röng nálgun og þetta er ekkert í fyrsta skipti í ríkisfjármálunum þar sem er boðaður flatur niðurskurður á allar stofnanir ríkisins, 160 talsins. Ég verð að segja að við þurfum að fara að hugsa þetta upp á nýtt. Ég geri smá mun á því hvort við gerum kröfu um að Vatnajökulsþjóðgarður, Ríkisútvarpið, Mannréttindastofnun, fjölmiðlanefnd eða Neytendastofa skeri niður í sínum rekstri eða t.d. stofnanir eins og Hafrannsóknastofnun eða menntastofnanirnar. Hafrannsóknastofnun er vísindastofnun sem hefur þá ábyrgð að kanna og hafa utanumhald um lífríkið og hafið í kringum okkur, gefur út kvóta sem er ein af undirstöðum verðmætasköpunar Íslands. Það er fjárfesting að fjárfesta í hafrannsóknum og að sama skapi er það fjárfesting að fjárfesta í menntun. Ég held að í staðinn fyrir einhvers konar flatan niðurskurð, einhverja niðurskurðarkröfu, þá verðum við að horfa öðruvísi á menntunina sem dæmi. Að mennta unga fólkið okkar er fjárfesting. En við verðum að fara vel með fé. Við verðum alltaf að hafa það á bak við eyrað að við erum að fara hér með skattfé. Við eigum alltaf að fara vel með fé en það er ekki þar með sagt að við eigum að gera flata niðurskurðarkröfu á hvað sem er.

Hv. þm. Ingvar Þóroddsson kom inn á einmitt punkt sem ég ætlaði að ræða hér og það eru t.d. hugmyndir sem komu upp um sameiningu míns gamla menntaskóla, Menntaskólans á Akureyri, og Verkmenntaskólans á Akureyri. Það var að sjálfsögðu horfið frá af því að því var mótmælt harðlega. Því var mótmælt harðlega af samfélaginu á Akureyri, fyrrverandi nemendum, núverandi nemendum þar sem voru engin samlegðaráhrif í því að sameina þessar tvær menntastofnanir. Engin. En það er nefnilega þannig að það er svo gott að geta sameinað menntastofnanir úti á landi, í langtíburtistan. Svo ertu með tvo menntaskóla hlið við hlið í Reykjavík en það er ekki hægt að sameina þá, sem eru sko tveir menntaskólar. En í langtíburtistan er nú gott að sameina stofnanir.

Af því við erum að tala um 2,5 milljarða kr. niðurskurð í framhaldsskólunum þá riðu menn hér um héruð fyrir nokkrum mánuðum síðan og skrifuðu undir viljayfirlýsingar um byggingu verknámshúsa við nokkrar skólastofnanir hér um allt land. Ég vil bara taka sem dæmi að það var skrifað undir yfirlýsingu um byggingu nýs verknámshúss við Menntaskólann á Ísafirði, gríðarlega mikilvægt og stórt mál fyrir þessa menntastofnun. Hefur eitthvað gerst í því? Nei, það hefur ekkert gerst í því. Ráðuneytið dregur lappirnar. Ég held að í engu af þessum verkefnum hilli undir neina fjármögnun á þessum verkefnum. Það held ég að sé nú fordæmi fyrir stjórnmálamenn framtíðarinnar, ef þeir ætla að fara út um allt land og skrifa undir viljayfirlýsingar þá verður að fylgja því efndir og fé þegar fram líða stundir. Við skulum ekki vera að vekja upp óþarfavæntingar. En það er búið að skrifa undir þessa viljayfirlýsingar og við skulum sjá til þess að það verði staðið við þetta af því að það skiptir miklu máli fyrir þessar menntastofnanir. Eins og t.d. fyrir Menntaskólann á Ísafirði, þar sem ég var um daginn, það skiptir gríðarlega miklu máli að þessi viðbygging komi, að þetta nýja verknámshús rísi. Ef það gerist ekki þá er það þannig að það unga fólk sem ætlar að fara í verknám þarf að fara til Reykjavíkur með tilheyrandi kostnaði í staðinn fyrir að við getum eflt menntun heima í héraði og tryggt að þetta unga fólk geti verið áfram heima í héraði og klárað sína menntun þar. Við eigum ekkert að hafa annan standard eða annan staðal, virðulegur forseti, afsakaðu enskuslettuna, á framhaldsskólunum úti á landi heldur en hér á höfuðborgarsvæðinu.

Virðulegur forseti. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til þess að horfa til nýrrar nálgunar á því þegar við erum að tala um menntamál. Menntun er fjárfesting. Hún er fjárfesting þjóðarinnar til framtíðar. Við eigum að fara vel með fé og við eigum að spara það sem hægt er að spara en við eigum ekki að boða hér flatan niðurskurð. Það er hægt að gera það við Vatnajökulsþjóðgarð eða Mannréttindastofnun. En menntastofnanir eru fjárfesting og þá erum við að fara vel með fé.