farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna til ársins 2035. Tillagan felur í sér fyrstu heildstæðu stefnu íslenskra stjórnvalda um málefni barna og er hún lögð fram á grundvelli 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021. Með tillögunni er lagt til að stefnan gildi til næstu tíu ára og á grundvelli hennar verði síðan undirbúnar framkvæmdaáætlanir um verkefni ríkisins sem byggja á stoðum stefnunnar en gildi til skemmri tíma í senn.
Virðulegur forseti. Sú tillaga sem hér er lögð fram var mótuð í víðtæku samráði fjölmargra aðila og grundvallast einkum á umræðu sem fram fór á fyrsta farsældarþinginu sem haldið var eftir gildistöku laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna í september 2023. Á farsældarþinginu komu saman börn, foreldrar og aðrir aðstandendur þeirra auk starfsfólks og sérfræðinga í ólíkum þjónustukerfum sem veita börnum þjónustu, þar með talið á vegum félagsþjónustu, skóla og frístundastarfs, heilbrigðiskerfisins, lögreglunnar, félagsmiðstöðva og ríkisstofnana. Þá voru einnig viðstaddir fulltrúar fjölmargra hagsmunasamtaka sem vinna að málefnum barna. Umræðum þingsins var skipt eftir grunnstoðum farsældar með það að markmiði að unnt yrði að móta stefnu sem tæki mið af öllum þeim atriðum sem máli kunna að skipta í því skyni að stuðla að farsæld barna hér á landi. Í framhaldi voru tillögur og niðurstöður þingsins ræddar sérstaklega í fimm rýnihópum sem samanstóðu af fulltrúum ráðuneyta, stofnana, samtaka og annarra hagsmunaaðila. Því til viðbótar fór síðan fram sérstakt samráð við börn. Úr þeirri vinnu urðu til ákveðnar tillögur sem síðan voru unnar áfram í mennta- og barnamálaráðuneytinu sem og á vettvangi stýrihóps Stjórnarráðsins í málefnum barna og að endingu kynntar almenningi í opnu samráði í samráðsgátt stjórnvalda.
Virðulegur forseti. Lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna er ætlað að stuðla að farsæld barna. Í lögunum er farsæld barns skilgreind sem aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar. Í mínum huga er ljóst að því markmiði verður ekki náð eingöngu með því að tryggja börnum snemmtækan stuðning og samfellda þjónustu í einstökum málum heldur þurfa stjórnvöld samhliða að vinna markvisst að því að tryggja heildstæða stefnumótun um málefni barna hér á landi.
Sú tillaga sem hér er lögð fram felur í sér heildstæða stefnu í málefnum barna sem miðar ekki eingöngu að því að endurspegla stefnu ríkisins þegar kemur að rétti barna til tiltekinnar þjónustu heldur miðar hún einnig að því að tryggja að stjórnvöld vinni að því að skapa barnvænt samfélag þar sem réttindi allra barna eru virt.
Virðulegur forseti. Til að endurspegla þessa sýn er tillagan sett fram á þann hátt að unnt sé að byggja á stefnu þeirri sem hér er lögð fram við alla stefnumótun sem tengist málefnum barna, hvort sem sú stefnumótun lýtur að tilteknum málaflokkum og að málefnum eða réttindum barna almennt. Framtíðarsýn stefnunnar grundvallast á því markmiði að Ísland verði barnvænt land þar sem réttindi og farsæld barna verða í öndvegi.
Í tillögunni er lagt til að stefnan hvíli á sex stoðum sem eru eftirfarandi: 1. Jafnræði allra barna og fjölskyldna þeirra. 2. Barnvæn nálgun og þátttaka barna. 3. Stuðningur í þágu barna og fjölskyldna þeirra. 4. Fræðsla, forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir í þágu barna. 5. Framúrskarandi mannauður í þágu barna. 6. Áreiðanleg og heildstæð gögn um börn og fjölskyldur þeirra. Það sem stoðirnar eiga sameiginlegt er að þeim er ætlað að endurspegla ákveðin leiðarljós sem lagt er til að liggi til grundvallar framtíðarsýn stefnunnar. Leiðarljósin eru: 1. Stefnan miði að því að skapa barnvænt samfélag þar sem réttindi allra barna verði virt. 2. Stefnan byggist á heildstæðri nálgun og áherslu á samfellu og samþættingu við veitingu þjónustu. 3. Í stefnunni verði tekið sérstakt tillit til viðkvæmra hópa barna.
Virðulegur forseti. Að lokum langar mig að árétta mikilvægi þess sem fram kemur í III. kafla tillögu þeirrar sem hér er lögð fram og fjallar um innleiðingu stefnunnar verði hún samþykkt. Þar er kveðið á um að stefnan verði innleidd í víðtæku samráði við börn og mun ég leggja á það ríka áherslu enda tel ég það skipta meginmáli fyrir framgang hennar. Þar er einnig kveðið á um það að á grundvelli stefnunnar verði undirbúnar framkvæmdaáætlanir um verkefni ríkisins sem varða farsæld barna, líkt og ég hef minnst á hér í upphafi. Lögð verði áhersla á að þær áætlanir verði settar fram með þeim hætti að þær hafi að geyma mælanleg markmið sem og tímasettar og fjármagnaðar aðgerðir enda ljóst að fjárfesting í þágu barna er til þess fallin að stuðla að ávinningi til hagsbóta fyrir samfélagið allt.
Virðulegur forseti. Að lokinni þeirri umræðu sem hér fer fram í þingsal legg ég til að þessu máli verði vísað til hv. velferðarnefndar Alþingis.