farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð. Þetta eru sannarlega falleg markmið og þetta er byggt á, eins og ráðherrann fór yfir, vinnu síðasta mennta- og barnamálaráðherra á síðasta kjörtímabili, gríðarlega mikil vinna sem lögð var í farsældarfrumvarpið. Hérna er okkur birt tillaga til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna. Eins og ég segi eru þarna falleg leiðarljós, ef svo má segja. Fjallað er um að grunnstoðir stefnunnar um farsæld barna byggi á jafnræði allra barna og fjölskyldna þeirra, barnvæna nálgun og þátttöku barna, stuðningi í þágu barna og fjölskyldna þeirra, fræðslu, forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum í þágu barna, framúrskarandi mannauð í þágu barna og áreiðanlegum og heildstæðum gögnum um börn og fjölskyldur þeirra, eins og segir í tillögunni. Þetta eru falleg og göfug markmið og eitthvað sem við öll, hvar sem við komum að málum í samfélaginu, hljótum að sammælast um að sé eitthvað sem við eigum að vinna að með einum eða öðrum hætti.
Í tillögunni er lagt til að stefnan gildi til ársins 2035 og á grundvelli hennar verði settar nánari tímasettar framkvæmdaáætlanir um verkefni ríkisins sem varða farsæld barna með mælanlegum markmiðum og fjármögnuðum aðgerðum. Mig langar að fá fram frá hæstv. ráðherra: Hvenær gerir hann ráð fyrir því að þessi framkvæmdaáætlun verði lögð fram og kynnt og hvað sér hann fyrir sér að verði sett í forgang þar, á hverju vill hann byrja?