farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir andsvarið. Ég vil benda á það að við erum að fara í tíu ára plan um farsæld barna og það kemur skýrt fram að ráðherra leggur fram stefnu og framkvæmdaáætlun sem tillögu til þingsályktunar og innan árs — eða það er stefnt að því að halda barnaþing og fylgja eftir þessari stefnu. Það verður byrjað strax að fara í að kortleggja hvernig við getum framkvæmt þetta og ég tel að við eigum auðvitað að stefna að því að framkvæma þetta á sem stystum tíma þannig að við náum því sem fyrst að stefnan nái því að verða eins og við viljum, að við tökum virkilega á farsæld barna og sjáum til þess að börnin verði í forgangi, að við hlustum á börnin. Ég hef farið á eitt svona þing. Það er virkilega gaman að vera á þessum þingum og hlusta á börnin vegna þess að þau hafa alveg ótrúlega víðsýni og skilning langt umfram það sem maður bjóst við og spurningar sem þau lögðu fyrir mann og hvernig þau nálguðust verkefnið sýndu fram á að það er oft, eins og ég hef hingað til sagt og mun segja hér aftur og aftur, kominn tími til að við hlustum. Ég ætla að hlusta á börnin og ég ætla að stefna að því að koma þessu í framkvæmd eins fljótt og auðið er vegna þess að til þess er leikurinn gerður.