156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:21]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég tel að við munum ekki loka á neina aðstöðu sem varðar börn með fjölþættan vanda og ég trúi því og bæði ég og ríkisstjórnin munum gera allt sem við getum til að taka á þeim vanda sem þar er. En síðan get ég líka glatt hv. þingmann með því að það stendur til að aðgerðaáætlunin verði í haust þannig að við ætlum að taka virkilega á þessum málum og koma þeim af stað. Ég tel að það sé eitt af því mikilvægasta sem við eigum að gera vegna þess að ef við hér á þingi höfum sannarlega eitthvað til að taka virkilega á þá eru það málefni barna og eins og ég hef líka sagt þá verðum við sérstaklega líka að taka á málum þeirra barna sem eru með fjölþættan vanda.