farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans andsvar. Ég get bara sagt að það er alveg á hreinu að þetta á auðvitað við alla, sveitarfélög, alla þá sem hafa hagsmuni barna að leiðarljósi. Það segir sig sjálft og ég trúi því að það muni allir taka höndum saman um það að nýta sér öll þau úrræði sem við höfum til að taka á í málefnum barna, að hlusta á börnin, vinna markvisst að því að taka út allar hindranir og annað sem getur valdið því að börn geti ekki blómstrað. Við verðum líka alltaf að átta okkur á því að það er ekki allt svart, sem betur fer ekki. En það er alltaf áskorun og ein af okkar aðaláskorunum er að taka á málum hjá þeim börnum sem eru með fjölþættan vanda og hjálpa þeim en líka að sjá til þess að þau börn sem standa bara vel fái líka að blómstra, þannig þá eru allir að vinna, held ég.