farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég er alveg sammála hæstv. ráðherra um mikilvægi þess að setja börnin í forgang og ég trúi því að við séum að því í dag, öll að vinna í sömu átt. Ég er bara að reyna að átta mig á því hvort þessi þingsályktunartillaga sem við ræðum hér sé að setja einhverjar auknar skyldur á sveitarfélögin þar sem þetta er þingsályktunartillaga en ekki lög. Og þessi fallegu markmið í þessari þingsályktunartillögu, eru þau ekki innleidd í öll þau lög sem við erum hvort sem er búin að setja? Þetta hefur ekkert lagalegt gildi gagnvart sveitarfélögunum. Er þetta að bæta einhverju við öll þau lög og sáttmála sem ég taldi upp hér áðan eða erum við ekki bara að gera þetta allt hvort sem er og búin að setja þessar skyldur á sveitarfélögin í gegnum lög? Þetta eru ekki lög.