156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:26]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég segi bara: Þetta er leiðarljós fyrir okkur, sveitarfélögin, fyrir alla sem vilja koma að farsæld barna. Þetta er bara þingsályktunartillaga um að við tökum höndum saman og hugsum um farsæld barna og sjáum til þess bæði að hlusta á þau og líka að kortleggja hvaða sýn þau hafa á sín eigin mál og fylgja því eftir. Til þess erum við að leggja þetta fram. Það segir sig sjálft að sveitarfélög hafa auðvitað sína sýn á þetta og geta tekið þátt í þessu á þann hátt sem þau vilja. Ég trúi ekki öðru en að sveitarfélögin taki fagnandi öllu því sem varðar farsæld barna og taki þar af leiðandi líka þessari þingsályktunartillögu fagnandi til að taka á þeirra málefnum.