156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:27]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að vera svolítið leiðinleg hérna. Ég veit ekki hvað þetta er, þetta eru bara falleg orð á blaði. Þetta á ekkert erindi sem þingskjal hingað inn, ekki neitt. Þetta er ekki stefna. Þetta er engin stefna í málefnum barna, farsæld barna. Hér er bara ályktað að við alla stefnumótun um málefni barna sem og í framkvæmd þjónustu í þágu farsældar þeirra verði unnið á grundvelli þeirrar framtíðarsýnar sem hér er sett fram, og svo koma einhverjir þrír punktar, einhverjar stoðir og innleiðingin er bara viðvarandi verkefni.

Virðulegur forseti. Ég veit eiginlega ekki hvað er verið að bjóða okkur upp á. Þetta er önnur þingsályktunartillagan sem ég gagnrýni svona. Hin var um borgarsamfélagið sem var nákvæmlega það sama, ekki stefna heldur einhver örfá orð á blaði. Þegar við samþykktum tillögu til þingsályktunar um barnvænt Ísland þá vorum við með markmið. Það voru margir punktar, það voru raunveruleg markmið. Það var aðgerðaáætlun, það var ábyrgð, það var framkvæmdin, hver ætti að framkvæma, (Forseti hringir.) tímasetningin. Hér er ekki neitt.