156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:29]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar andsvar og ég er bara innilega ósammála henni. Þetta er frábær stefna. Þarna er stefna sem við erum að framkvæma og varðar börn, við erum að hlusta á börnin. Við erum að fara að tala við börnin, við erum að fara að leyfa þeim að koma að borðinu og segja sína skoðun. Getum við hér á Alþingi komið og sagt að þetta sé bara tómt bull, það sé ekkert um að vera og við eigum bara að sleppa þessu? Ég er algerlega ósammála því þetta er einmitt það sem við eigum að gera. Við eigum að halda barnaþing, við eigum að hlusta á börnin, við eigum að leyfa þeim að taka þátt og ef við gerum það ekki þá held ég að við séum að taka út stóran hóp af þegnum landsins og segja að þau skipti engu máli hérna á þingi. Ég er bara innilega ósammála. Þau skipta öllu máli.