156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er algjörlega sammála hæstv. ráðherra í því, börnin skipta öllu máli og við eigum að hlusta á börnin. Þess vegna er svo mikilvæg löggjöf sem við höfum innleitt hérna á síðustu árum. Þess vegna var löggjöfin um farsældina svo mikilvæg og þess vegna var framkvæmdaáætlunin líka svo mikilvæg. En það sem ég er að segja hér er að þetta þingskjal sem slíkt, það sem fellur undir þingsályktunina, eru þrír örstuttir kaflar á fyrstu síðunni. Hitt er allt greinargerð um frábært starf sem fyrrverandi hæstv. barna- og menntamálaráðherra hefur unnið og ég hvet hæstv. ráðherra til að fylgja því eftir. Frábært að halda farsældarþing en það sem ég er að segja er að þetta sem þingskjal og þingsályktunartillaga á ekkert erindi hér sem tekur upp tíma þingsins. Þetta er fínt í umræðu um farsæld barna. Ég hvet hæstv. ráðherra áfram í að fylgja eftir því sem fram kemur í farsældarlöggjöfinni, tryggja að innleiðingin skili sér, tryggja það að við séum raunverulega að vinna fyrir börn í vanda, koma svo með raunverulega stefnu og aðgerðaáætlun sem hægt er að taka pólitíska umræðu um hér á þingi. Sýna hver ber ábyrgð á hverju, hvað hlutirnir eiga að kosta því það er ekkert slíkt (Forseti hringir.) sem kemur fram í þessum örfáu setningum sem eru hér á fyrstu blaðsíðu þessa heftis.