farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og við verðum bara að vera sammála um að vera algjörlega ósammála. Það er allt í lagi líka. En ég segi að við erum einmitt að byggja á því, við erum að fara að byrja þá vinnu sem hún er að biðja um. Það er í þessari stefnu. Þó að við förum kannski ólíkar leiðir að því og henni finnist þessi leið kannski ekki rétta leiðin þá finnst mér þessi leið rétta leiðin og ég ætla að fara eftir þessu. Það kemur að því að við komum með stefnu og við komum með fjármagn og við munum fylgja þessari stefnu eftir og til þess er leikurinn gerður. Við getum verið ósammála um það hvort þetta sé frábært eða ekki en við erum hér núna með stefnu um málefni barna og það hlýtur alltaf að vera gott að taka hérna inn í þingið stefnu um farsæld barna, að við séum að hugsa um börnin og hvernig við getum gert líf þeirra betra og farsælla. Það hlýtur alltaf að vera til bóta.