156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:33]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu. Ég vil aðeins taka undir málflutning hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur varðandi stefnuna. Við samþykktum hér einmitt á síðasta kjörtímabili mál í tengslum við farsæld barna og við höfum verið að innleiða farsældina núna yfir þó nokkurn tíma og við vissum það alveg þegar við hófum þessa vegferð í Framsókn og í síðustu ríkisstjórn að þetta myndi taka tíma og það þyrfti þolinmæði. En þetta er líka kannski bara framtíðarsýn sem ég gef mér að hæstv. ráðherra sé að leggja til hér, að við höfum vissa framtíðarsýn í þessum málaflokki. Um leið er það þannig að það er mikilvægt að þessi stefna verði í rauninni brú á milli barna, heimila, skóla, sveitarfélaga og líka þjónustukerfa, að við séum einmitt að brjóta niður þessi síló á milli þjónustukerfanna, að við séum að tala þvert á og að þjónustan mæti börnunum þar sem þau eru í staðinn fyrir að börnin séu að rekast á einhvers staðar. Ég vil samt spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann hyggst tryggja fjármagn til að framkvæmdaáætlanir, byggðar þá á þessari stefnu sem verður búin til, verði raunhæfar og tímasettar og hversu stór hluti (Forseti hringir.) af útgjöldum ríkisins til fjölskyldumála, menntamála eða heilbrigðisþjónustu tengist beint innleiðingu þessarar stefnu.