156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:34]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar andsvar og segi bara að þetta er nú að stórum hluta komið frá fyrrverandi hv. þm. Ásmundi Einari Daðasyni, samflokksmanni hennar, og hún hlýtur þá alla vega að fagna því að það sé verið að halda áfram á þeirri braut sem þar var upphaflega mörkuð. Eins og kemur fram verður lögð fram aðgerðaáætlun í haust og síðan auðvitað í framhaldi af því kemur inn áætlun um hvað þetta kostar og hvernig þetta verður fjármagnað og hvernig því fjármagni verður skipt, í hvaða hluta það verður notað. En númer eitt, tvö og þrjú: Við ætlum að koma á þessari farsæld og við ætlum að halda áfram því góða verki sem hefur verið unnið, til þess er leikurinn gerður. Ég held að við hljótum að vera sammála um það og ég trúi ekki öðru en að hv. þingmaður styðji okkur í því að halda því áfram vegna þess að ég get ekki ímyndað mér annað en að það séu allir sammála því að farsæld barna sé eitthvað sem allir geti stutt.