156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Já, það er alveg hárrétt að við Framsóknarmenn erum alveg gríðarlega stolt af þessu verkefni og við erum stolt af því að hafa sett málefni barna á dagskrá, sem skiptir gríðarlega miklu máli. Ég fagna því að núverandi ríkisstjórn sé að fylgja þessum málum eftir og við munum ekki láta okkar eftir liggja þegar kemur að því, ef það vantar einhverja til að leggja hönd plóg, að vinna þessu máli einhvern framgang. Við munum styðja það alveg heils hugar. En við þurfum samt líka að vera raunsæ ef við ætlum að setja fram stefnu og erum að setja fram framkvæmdaáætlun. Á síðasta kjörtímabili var eyrnamerkt fjármagn sérstaklega til sveitarfélaga til þess einmitt að hægt væri að ráða starfsmenn til að fylgja eftir þessari stefnu sem við vorum að innleiða. Ég velti fyrir mér: Miðað við niðurskurðinn sem er lagður til í fjármálaáætluninni, hvað eru miklir fjármunir áætlaðir í þetta verkefni út frá því að það sé hægt að framfylgja raunverulega þessari framkvæmdaáætlun sem á eftir að koma fram? Við vitum það samt sem áður að með fjárfestingu í farsæld barna þá erum við að spara inn í framtíðina, (Forseti hringir.) við vitum það alveg, alls staðar í öllu kerfinu, hvort sem er litið til heilbrigðiskerfis, félagskerfis eða dómsmálakerfis.