156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:49]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða um stefnu um farsæld barna. Inntakið er það að réttindi barna séu virt í framkvæmd, að þeirra forsendur liggi til grundvallar ákvarðana um þau. Í greinargerðinni kemur fram að þetta sé liður í markvissri innleiðingu barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þar er líka talað um farsældarþing.

Við erum svo oft að ræða hér hluti sem okkur þykja að eigi að vera sjálfsagðir. Hér fyrr í dag vorum við t.d. að ræða mikilvægi aðgangs að góðum námsgögnum. Það þýðir ekki að við eigum ekki að vera að ræða þessa hluti, að við eigum ekki að vera að halda þeim á lofti og stefna að því að gera sífellt betur. Þar er staða barna, velsæld barna auðvitað ofarlega á dagskrá. Jafnræði barna, stuðningur við viðkvæma hópa og við fjölskyldur, aðgengi og þátttaka barna, fræðsla og forvarnir, þjónusta við börn. Þetta hljómar allt eins og háleit og göfug markmið í okkar þróaða velmegunarsamfélagi. Það er jákvætt að við munum eftir börnunum, að við ræðum þau hér á þingi, þau sem hafa ekki eiginlegan málsvara eða fulltrúa hér á þingi úr sínum röðum.

Ég hef lagt mig fram við að hlusta eftir röddum barna og vera málsvari þeirra. Ég hef m.a. lagt fram þingmál eftir áeggjan barna um það. Ég get nefnt þingmál um skattskyldu barna eftir ég að fékk hingað heimsókn frá ungmennum sem kvarta yfir því að þau þurfi að greiða skatta en megi ekki kjósa. Svo get ég nefnt nýlegt frumvarp sem ég hef lagt hér fram með hópi Sjálfstæðismanna um rýmkaðan útivistartíma barna. Þetta er mál sem við höfum lagt hér fram til að bregðast einmitt við röddum barna.

En af því að ég hef lagt mig fram um þetta og af því að ég hlustaði hér á hæstv. ráðherra og hef lesið í gegnum orðskreytta greinargerð má ég til með að rifja það upp hér enn og aftur hversu freklega við gengum á réttindi barna í heimsfaraldri, hvað stjórnvöldum og öðrum valdhöfum þótti léttvægt að taka ákvarðanir sem gengu mjög nærri og brutu gegn mannréttindum barna. Það gerðum við til að hlífa öðrum en sjálfum börnunum, sérstaklega eftir því sem tíminn leið og þekkingin jókst. Við skertum skólagöngu þeirra, samvistir við önnur börn, íþróttastarf og félagsstarf eins og böll. Við skikkuðum börn, allt niður í ungbörn, í ítrekaðar sýnatökur og einangruðum þau jafnvel vikum saman. Þessar ákvarðanir., virðulegi forseti, þær eldast ekki vel. Stjórnvöld brugðust börnum í heimsfaraldri. Stofnanir sem við komum upp, rígmontin á tyllidögum, ekki til að halda ráðstefnur og taka myndir í heldur í raunverulegum tilgangi, stofnun eins og umboðsmaður barna, þetta kerfi brást allt saman. Þetta, virðulegi forseti, er það sem ég vildi rifja upp núna þegar þingheimur og hæstv. ráðherra, við skreytum okkur hér með því að við séum svo miklir barnavinir. Vonandi verður þetta ekki enn eitt plaggið sem við þykjumst svo ekki muna eftir þegar mest ríður á.