156. löggjafarþing — 29. fundur,  9. apr. 2025.

farsæld barna til ársins 2035.

283. mál
[21:53]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða þingsályktunartillögu, tillögu um stefnu um farsæld barna til ársins 2030. Það er verið að ræða hér hvort það sé stefna eða hvernig málið er vaxið en í mínum huga er í rauninni verið að ræða um vissa framtíðarsýn. Þetta er viss vegvísir um það hvernig við sem samfélag, sem þjóð, ætlum að standa vörð um réttindi barna og hvernig við ætlum í rauninni að skapa þeim aðstæður til að vaxa, dafna og þróast, í rauninni svolítið kjarnamál.

Eins og hæstv. ráðherra kom inn á er þetta mál okkar í Framsókn, því að við í Framsókn höfum talað lengi fyrir samfélagi þar sem jafnvægi ríkir milli borgara og ríkis og milli samfélags og einstaklings þar sem menntun, velferð og traust á opinbera þjónustu mynda í rauninni stoðir samfélagslegra framfara og þar stendur farsæld barna í öndvegi. Það kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem lögð er fram heildstæð stefna stjórnvalda um málefni barna eða í rauninni kannski verið að kalla eftir því að það fari vinna af stað í tengslum við það að mynda heildstæða stefnu stjórnvalda um málefni barna og byggist á sex stoðum; jafnræði, barnvænni nálgun, stuðningi við fjölskyldur, forvörnum, öflugum mannauði og gögnum.

Þetta er framsækin nálgun, þetta er framsóknarnálgun. En það er samt mikilvægt að þessi stefna verði ekki bara táknræn eða skjal sem fer bara upp í hillu. Hún verður í rauninni að virka. Hún verður að vera í sífelldri endurskoðun og þróun og í rauninni stefna sem við getum nýtt okkur til að bæta þjónustu við börn, til að vinna þvert á kerfin og til þess að þjónustukerfin aðlagist að þörfum barnsins, ekki að barnið þurfi að aðlagast kerfinu. Hún verður í rauninni líka að vera eitthvað sem breytir raunveruleika barna, sérstaklega þeirra sem þurfa mest á því að halda.

Þrátt fyrir að við vissum það þegar lagt var af stað að þessi innleiðing myndi taka tíma þá höfum við heyrt að hún sé samt farin að skila árangri. Við heyrum reynslusögur foreldra, reynslusögur innan úr menntakerfinu okkar, að þetta kerfi sé að ná betur utan um og einstaklingar séu að ná betur utan um börnin okkar sem skiptir gríðarlega miklu máli því að við í Framsókn höfum ávallt lagt áherslu á það að byggja brýr, ekki múra. Þessi stefna, þegar hún verður að veruleika, getur orðið slík brú. Hún getur orðið brú á milli heimila, skóla og sveitarfélaga og þjónustukerfa. En til að það gerist þarf hún líka að byggja á traustum grunni. Vissar undirstöður þurfa að vera til staðar eins og það þarf að vera til staðar fjármagn. Það þarf að vera til staðar ábyrgð, mælikvarðar og raunhæf verkáætlun.

Það sem vekur athygli mína er í rauninni engin skýr tenging við fjármálaáætlunina sem er nýbúið að leggja fram. Það er í rauninni engin fjárhagsleg forgangsröðun, það eru engir mælikvarðar um framvindu og hvernig eigi að meta árangurinn þrátt fyrir að um eitt metnaðarfyllsta velferðarmál þingsins sé að ræða, að mínu mati a.m.k., en í heildarfjárhagsáætlun ríkisstjórnarinnar stendur málefnasvið fjölskyldumála í stað. Það er í rauninni engin raunaukning í hlutfalli við þá stefnu sem er verið að leggja hérna fram. Það er ekki minnst einu orði á sérstakt fjármagn til að innleiða aðgerðir. Ég tel að þetta sé eitthvað sem við þurfum að skoða frekar því að það er mikilvægt að stefnan og fjármálin verði samtvinnuð þannig að það sé í rauninni búið að forgangsraða og tryggja fjármagn til snemmtæks stuðnings og stuðnings við foreldra, fræðslu og þjónustu í nærumhverfi barnanna okkar.

Þessi stefna snýr auðvitað að heilbrigði og menntun og líka réttindum og framtíðarhagsmunum þjóðarinnar. Farsæld barna er auðvitað grunnforsenda félagslegs stöðugleika og samfélagslegrar samstöðu. Við í Framsókn höfum talað mikið fyrir mikilvægi forvarna í menntun, lýðheilsu og félagsmálum. Með því að fjárfesta í farsæld barna erum við einmitt að spara milljarða síðar í heilbrigðiskerfinu, félagslega kerfinu og í dómskerfinu og við vitum þetta. Þetta eru ekki tilgátur. Þetta eru staðreyndir byggðar á fjöldamörgum rannsóknum sem sýna það að snemmtækur stuðningur dregur úr brotthvarfi úr skóla, bætir lífsgæði og minnkar líkur á geðrænum vanda, fátækt og félagslegri einangrun. Það var reiknað einmitt út á sínum tíma þegar var verið að leggja fram frumvarp tengt farsæld barna að þetta skilaði sér raunverulega ef það er ráðist í að setja fjármuni í þessar forvarnir.

Það er annað sem við í Framsókn leggjum áherslu á og það er rödd barna, að það verði hlustað á börnin. Hæstv. ráðherra kom inn á það hér að hann myndi svo sannarlega ætla að gera það í sinni vinnu. En þetta snýst ekki bara um að hlusta, þetta snýst um raunverulegt samráð og að raddir barnanna og ungmennanna okkar hafi áhrif á þær ákvarðanir sem á að taka um þau, allar ákvarðanir er varða þau. Það er til fyrirmyndar að börn hafi komið að stefnumótun, bæði á farsældarþingi og í rýnihópum, og ég fagna því að það eigi að gera slíkt áfram. En við þurfum líka að tryggja það samt að það verði ekki bara hlustað á þau heldur muni þau hafa áhrif þannig að það sé hægt að mennta starfsfólk í barnvænni nálgun, það sé hægt að styrkja lýðræðisvitund í skólum og efla aðgengi barna að upplýsingum um eigin rétt.

Síðan er líka verið að fjalla hérna um mannauð. Við sjáum nú þegar að það eru ýmis merki um að það sé skortur á fagfólki í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, barnavernd og heilbrigðisþjónustu barna. Ef við ætlum að byggja þjónustukerfi í kringum börnin okkar þá verðum við líka að fjárfesta í fólkinu sem sinnir þjónustunni í kringum þau. Ég myndi vilja gjarnan sjá að það sé verið að setja líka sérstaka aðgerðaáætlun um það hvernig við ætlum að mennta fólkið sem mun starfa í kringum börnin, hvernig við ætlum að laða að og halda í sérhæft fagfólk og hvernig við ætlum að hvetja sveitarfélög til samstarfs um sameiginleg úrræði og stuðning.

Ég renndi aðeins í gegnum umsagnirnar í kringum þetta mál og mér sýndist það hefðu verið birtar í kringum 12 umsagnir þar sem voru ábendingar og áhyggjur, m.a. ábendingar um að tæknilausnir vanti til að styðja við samþættingu þjónustunnar eða að fjármagn til innleiðingar sé óljóst og ótryggt, og ég fór ágætlega yfir það í máli mínu hér, en einnig líka að þekkingu á barnasáttmálanum sé enn ábótavant meðal fagfólks. Ég veit ekki hvort þetta sé byggt á staðreyndum en vissulega eitthvað sem væri hægt að gera bragarbót á ef það reynist rétt. Hérna gefst okkur tækifæri til að bregðast við þessum ábendingum áður en við förum í vinnu við framkvæmd áætlunarinnar.

En við í Framsókn viljum samfélag og styðjum við samfélag sem styður við fjölskyldur og þar sem þjónusta fer fram til barnsins en ekki öfugt og þar sem skólinn, heilbrigðiskerfið, félagsþjónustan og frístundastarfið tala saman í rauninni á mannamáli í eina stefnu með eina samræmda sýn. Við í Framsókn höfum auðvitað talað fyrir lausnum frekar en vandamálum og þjónustu í nærumhverfi barna og sveigjanleika og ábyrgð. Við vitum að farsæld kemur ekki af sjálfu sér. Hún þarf ramma, hún þarf stuðning og leiðsögn og fjármagn. Hún þarf fólk sem hefur trú á farsældinni. Þessi stefna gæti alveg orðið lykillinn að raunverulegum umbótum í málefnum barna á Íslandi en við verðum líka að tryggja að hún fái burði til að lifa og dafna. Við í Framsókn erum svo sannarlega reiðubúin til þess að leggja hönd á plóg þegar kemur að vinnu við þetta mál og ef það er eitthvað sem við getum gert til að hjálpa til til þess að hún nái framgangi þá erum við reiðubúin. Ég hlakka til að fá þessa stefnu til umfjöllunar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og held að hér sé verið að leggja enn einn steininn í þá brú sem þarf til að byggja góða þjónustu í kringum börnin okkar, snemmtæka íhlutun og hvernig við getum haldið utan um börnin okkar og stuðlað að frekari forvörnum og gripið börnin fyrr en hefur verið gert á undanförnum árum, einmitt til að tryggja farsæld þeirra til framtíðar.