farsæld barna til ársins 2035.
Virðulegi forseti. Ég vildi koma hingað upp undir þessum lið og fagna þessari þingsályktunartillögu sem hér hefur verið lögð fram af hálfu ráðherra. Ég vil kannski draga fram ákveðið atriði sem ég tel jákvæðast við þessa þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir. Það er að nú er ný ríkisstjórn búin að taka við, nýr mennta- og barnamálaráðherra hefur tekið við og hér er lagt fram plagg um að halda eigi áfram með þau góðu verkefni sem voru komin af stað á síðasta kjörtímabili, hvort sem við erum að tala um lögin um farsældina þar sem t.d. núverandi ríkisstjórn steig risaskref varðandi að taka yfir málaflokk barna með fjölþættan vanda sem tryggir það að við veitum þeim góða þjónustu, byggjum upp þá innviði sem þau þurfa á að halda en léttum líka undir sveitarfélögunum þannig að þau geti gert það sem þau gera best, sem er að tryggja fyrsta og annars stigs forvarnir og þjónustu við börn og ungmenni til að tryggja að öll börn á Íslandi hafi tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu, sækja sér menntun, ná að vaxa og dafna í starfi, stundum er notað hugtakið að blómstra, ná sínum árangri sem þau geta náð í lífinu með þeim stuðningi sem þau þurfa á réttum tíma til að fyrirbyggja líka frekari vandamál fyrir þau sem eru hugsanlega á leiðinni út af brautinni.
Þetta tel ég mikið heillaskref en ég vil draga fram ákveðið atriði sem mér þykir jákvætt að sjá hér að ráðherra er að lýsa stuðningi yfir. Það tengist í rauninni vísun í aðrar stefnur sem hafa þegar verið samþykktar, sem er ekkert alltaf sjálfgefið að nýjar ríkisstjórnir og nýir ráðherrar taki upp. En hér kemur t.d. fram, með leyfi forseta:
„Þegar litið er til þeirrar stefnumótunar sem fram hefur farið og tengist málefnum barna og ungmenna er ljóst að slík stefnumótun tekur gjarnan mið af tilteknum málaflokkum. Hér má til að mynda nefna menntastefnu fyrir árin 2021–2030, sbr. þingsályktun nr. 16/151, stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030, sbr. þingsályktun nr. 29/149.“
Ég vil kannski draga sérstaklega fram stefnu sem ber heitið Framtíðin — stefna um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030. Ég veit að fagfólk og ungt fólk úti um allt land fagnar mjög að hér stígi ráðherra fram og lýsi yfir stuðningi við þessa stefnu sem unnin var í breiðri sátt alls fagvettvangsins í miklu samráði við börn og ungmenni. Þar eru stigin markviss skref til að kortleggja og ná betur utan um þetta óformlega menntakerfi sem er einn af styrkleikum íslensks menntakerfis og hvernig við stuðlum að farsæld barna og ungmenna á Íslandi, þ.e. að við erum ekki bara með öflugt skólakerfi heldur líka öflugt forvarnastarf, æskulýðsstarf og íþróttastarf.
Með þessari stefnu sem skiptist í meginþætti um að tryggja öllum börnum úti um allt land aðgang að faglegu og gefandi æskulýðsstarfi, að bæta rekstrar- og starfsumhverfi ungmennafélaga og þeirra sem standa að æskulýðsstarfi á Íslandi, hvort sem það snýst um rekstur þeirra eða líka að styrkja sjóði sem ríkið heldur úti og hefur lengi verið hægt að sækja um ákveðna verkefnastyrki en hefur verið mikið ákall frá sérstaklega ungmennafélögunum um að skortur sé á að geta sótt um rekstrarstyrki til aðeins lengri tíma sem þau geta nýtt sér til að sækja t.d. um stóra Evrópustyrki sem við erum aðilar að í gegnum Erasmus-áætlanirnar og fleiri evrópskar samstarfsáætlanir sem skila margfalt fleiri milljónum inn í þjóðhagkerfið okkar ef ungmennin fá tækifæri til að skrifa umsóknirnar, framkvæma verkefnin og gera þessar skýrslur. Það er umsýsla sem fylgir því að framkvæma svona verkefni og þarna er verið að lýsa yfir stuðningi við þetta en svo líka hvernig við ætlum að styðja betur við mannauðinn, því öflugt forvarnastarf og æskulýðsstarf byggist líka á því að hafa aðgang að öflugu fagfólki líkt og við þurfum öfluga kennara. Það var nú góð ræða sem var flutt hér áðan varðandi mikilvægi alls skólasamfélagsins og hvernig bæði kennarar og húsverðir geta verið áhrifavaldar og verið verndandi þáttur í lífi barna og ungmenna og þá skiptir miklu máli að það sé aðgangur að fagfólki sem hefur þekkingu til að styðja við börn og ungmenni.
Síðasta skrefið í þessari stefnu sneri að rannsóknum og þróun, að við nýtum okkur þau gögn sem við erum nú þegar að vinna eins og íslensku æskulýðsrannsóknina og eflum frekar æskulýðsrannsóknir á Íslandi því að þetta er búin að vera ein af okkar helstu útflutningsvörum þótt það hafi ekki farið mikið fyrir því oft í umræðunni en þetta íslenska módel, stundum kallað Reykjavíkurmódelið á erlendum vettvangi — þar sem við höfum sýnt fram á að hægt er að ná árangri í forvörnum og uppbyggingu ungs fólks ef ólíkir hagsmunaaðilar; skólar, félagasamtök, íþróttafélögin og foreldrafélögin taka höndum saman um að taka utan um börnin okkar með markvissum leiðum — hefur skilað árangri. Þarna er bæði tækifæri til að við eflum starfið, að við kortleggjum betur hvað er að virka vel, að við förum betur með fé en þarna er líka útflutningsvara í raun í hugviti og aðferðafræði sem hefur sýnt sig yfir áratugina að hefur reynst vel á Íslandi.
Þessari stefnu fylgdi svo líka aðgerðaáætlun sem ég ætla ekkert að fara yfir hér en hún er að vissu leyti tímasett og búið að setja aðgerðir og leiðir og skipta niður hver beri ábyrgð á hverju o.s.frv. þannig að þó að ég skilji mjög vel ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um að hér sé kannski ekki margt nýtt að koma fram þá er það sem ég les úr þessu stuðningsyfirlýsing við annars vegar þá vegferð sem stjórnvöld hafa verið á síðastliðin ár varðandi farsæld barna og ungmenna en einnig stuðningur við þær stefnumótanir sem hafa þegar átt sér stað á breiðum grunni með vettvangi með notendum þjónustunnar o.s.frv. Ég tel að þessi vinna sem hefur verið unnin í þessum málaflokkum sé jákvæð. Ég tel því að þessi stuðningsyfirlýsing sé jákvæð og ég fagna þessu máli mjög.