156. löggjafarþing — 29. fundur, 9. apr. 2025.
farsæld barna til ársins 2035.
283. mál
Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. Mér þykir það í rauninni svolítið fallegt hér í lok þingfundar þegar klukkan er farin að ganga 11, að við tökum okkur smá tíma þar sem annars vegar þingmenn stjórnarandstöðunnar gefa okkur góð ráð um hvernig stjórnarliðar geta komið fleiri málum í gegn og fulltrúi stjórnarmeirihlutans tekur hér tíma til að hrósa öflugum fyrri verkum fyrri ríkisstjórnar. Ég held að það sé bara góður endir á góðum degi.