156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

samráð vegna breytinga á veiðigjöldum.

[10:34]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég verð að segja að mér þykir formaður Sjálfstæðisflokksins fara býsna bratt hér að tala um óábyrga stjórnsýslu. Staðreyndin er sú, eins og við þekkjum, að minnisblöð, ekki síst við stjórnarmyndunarviðræður, eru unnin í miklum flýti, enda eru þau minnisblöð sem hér er vísað í sett fram með þeim fyrirvara að þörf sé á að framkvæma ítarlegri breytingar til að leggja mat á áhrif. Sú vinna hófst í ráðuneytinu eftir að ég kom þangað inn og samráðið hófst mjög fljótlega. Upplýsingar hafa legið fyrir. Ég er með mjög skýra tímalínu þess samráðs sem var í boði og það var brugðist við ákveðnum áhyggjum, vísbendingum, sem komu fram í minnisblaðinu. Til að mynda var talað um að leiðréttingin sem þetta er, leiðrétting fyrir almenning í landinu, leiðrétting á grunni veiðigjalda sem á að greiða fyrir afnot af íslenskri þjóðarauðlind — jaðarverðið, já, vissulega ástæða til að hafa áhyggjur af því ef allar tegundir væru undir. Við notum bara þær tvær sem næg viðskipti eru með á markaði til að tryggja að það sé markaðsverð. Uppsjávarsamanburðurinn — jú, við slepptum loðnu og við miðum við sama tímabil. Við fengum ráðgjöf hagfræðinga frá Noregi sem staðfestu að norska verðið væri markaðsverð. Það var því nákvæmlega tekið tillit til minnisblaðanna og í kjölfarið var farið í samráð með hagsmunaaðilum. Það var talað um það, frá upphafi þessa ríkisstjórnarsamstarfs, að við ætluðum að leiðrétta grunninn. Það var rætt við upphaf þingmálaskrár, það var rætt við framlagningu fjármálaáætlunar og það var rætt á fundum, formlegum sem óformlegum, við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og boðað til funda sem Samtökin mættu ekki á. Það voru lögð fram gögn, vissulega ekki trúnaðargögn, vissulega ekki þau vinnugögn sem við erum með í þinginu — og ég bara hafna þeirri heimtufrekju sem kemur fram hjá hagsmunasamtökunum þegar þau kalla eftir því að við birtum slíkar trúnaðarupplýsingar. Þau fá þær upplýsingar sem við eigum og við getum birt. Þessi leiðrétting stendur. Hún er vel unnin og hún er fyrir almannahagsmuni.