samráð vegna breytinga á veiðigjöldum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið sem breytir þó ekki þeirri óvönduðu málsmeðferð sem hér hefur verið gagnrýnd með vaxandi þunga. Ég ætla að fá að leiðrétta hæstv. ráðherra þegar hún nefnir sí og æ að hér sé um leiðréttingu að ræða þegar við erum að ræða skattahækkun á eina mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar. Það hefur verið mikið talað um, ekki síst af Viðreisn, nauðsyn sáttar um sjávarútveginn og traust í gjaldtöku af auðlindinni, en hvernig á sátt að nást þegar öllu virðist hafa verið stefnt í einn farveg frá upphafi og samráði aldrei raunverulega ætlað að eiga sér stað? Við í Sjálfstæðisflokknum erum reiðubúin að ræða úrbætur í málefnum sjávarútvegs en það verður að gerast með faglegum undirbúningi og gegnsæi. Hér hefur annað verið uppi á teningnum. Vegferð ráðherrans einkennist af óskýrleika, skorti á upplýsingum og þeirri ákvörðun að halda aðilum málsins utan við ferlið.
Því spyr ég hæstv. ráðherra aftur: Telur hún raunhæft (Forseti hringir.) að byggja upp sátt með þessum hætti? Ef markmiðið er traust og samstaða hvers vegna var þá öllu hagað á þann veg að tortryggni væri nánast óumflýjanleg?