samráð vegna breytinga á veiðigjöldum.
Herra forseti. Aftur þakka ég fyrirspurnina. Sennilega er þá staðreyndin sú að við fulltrúar ríkisstjórnarinnar, sem ég tilheyri, og fulltrúar minni hlutans hér höfum mjög ólíka mynd af því hvað samráð er, sanngirni, traust og samráð. Ég minni á að hv. formaður Sjálfstæðisflokksins var hluti af þeirri ríkisstjórn sem fyrir ári síðan setti fram í fjármálaáætlun sinni hækkun á veiðigjöldum um 5 milljarða án nokkurs samráðs, án nokkurrar greiningar annarrar en þeirrar að það átti að breyta hlutfallinu sem fór til þjóðarinnar úr 33% í 45%. Hvar var það samráð? Við fórum í leiðréttingu og það verður bara að hafa það ef hv. formaður Sjálfstæðisflokksins telur það ekki leiðréttingu þegar við ætlum að búa svo um hnútana að útgerðin greiði fyrir raunverulegt verðmæti fisksins í sjónum. Við fórum í það að leiðrétta verðið en ekki þá vegferð að segja: Úps, okkur vantar 5 milljarða í ríkiskassann. Skellum því á útgerðina. Við fórum í að leiðrétta reiknistuðulinn og þetta var niðurstaðan.