frumvarp um breytingu á lögum um veiðigjald.
Frú forseti. Já, við fengum að heyra sama sönginn enn og aftur; manni finnst eins og maður hafi heyrt þetta áður. Vandi ríkissjóðs er ekki á tekjuhlið ríkisfjármálanna, frú forseti, vandi ríkissjóðs er á útgjaldahliðinni. Ríkisstjórnin hefur sannarlega sýnt á spilin. Hún treystir sér greinilega ekki til að taka á útgjaldahliðinni. Í þeim efnum gæti hæstv. ríkisstjórn skoðað fjölmargar tillögur sem Miðflokkurinn hefur lagt fram um sparnað í ríkisrekstri. Nei, þessi 111 daga ríkisstjórn hefur heldur betur sýnt sitt rétta andlit. Þrátt fyrir fögur fyrirheit formanns flokks hæstv. ráðherra hyggst ríkisstjórnin leggja áherslu á skatta. Hún boðar hækkun skatta á hjón og sambúðarfólk með niðurfellingu samsköttunar; hærri skatta á bifreiðaeigendur með kílómetragjaldinu; hækkun skatta á stærstu atvinnuvegina; skatt á ferðaþjónustuna og stórhækkun skatta á sjávarútveginn með fordæmalausu fyrirhyggjuleysi um allar afleiðingar. Kosningaloforð formanns Viðreisnar eru fokin út í veður og vind rétt eins og kosningaloforð Flokks fólksins sem fóru fyrir lítið. Hvar eru greiningarnar sem hljóta að hafa verið unnar um áhrif á fjárhag fyrirtækja, kjör sjómanna og hag byggðarlaga?