156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

áhrif breytinga á veiðigjöldum.

[10:46]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn hyggst leggja til breytingar á veiðigjaldi sem til stendur að afgreiða á þessu þingi og þá með afbrigðum. Boðað var til blaðamannafundar nýverið þegar frumvarpið var birt í samráðsgátt stjórnvalda og málinu hampað sem miklu réttlætismáli. Búið væri að uppgötva að hér á landi væri ekki byggt á raunverulegu markaðsverði. Rétt skyldi vera rétt, lét hæstv. fjármálaráðherra hafa eftir sér.

Í Morgunblaðinu í gær birtist frétt þar sem upplýst var um minnisblöð frá þáverandi matvælaráðuneyti sem kallað var eftir í stjórnarmyndunarviðræðum núverandi ríkisstjórnar. Þar kemur m.a. fram að sérfræðingar ráðuneytisins vara eindregið við þeim þáttum sem nú eiga að liggja til grundvallar á útreikningum veiðigjalds. Í greiningu á breyttri nálgun veiðigjalds er varað við því að líta til fiskmarkaðsverðs til stofns veiðigjalda á bolfiski, það sé einatt jaðarverð sem gæfi ekki rétta mynd af verðmyndun í heild til stofns veiðigjalds. Þar er einnig varað við því að miða við verð uppsjávarafla á norskum uppsjávarmarkaði en í Noregi sé verið að ákveða í gegnum sölusamtök í eigu útgerðar sem inniberi einnig hvata sem skekkt geta verðmyndun og í raun erfitt að fullyrða um að markaðsverð sé til staðar í löndunum, eins og þar stendur.

Ég vil því spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra: Hvernig fær það staðist að ana af stað með alla þá varnagla sem þarna eru slegnir með nýrri aðferðafræði við útreikninga veiðigjalds?