áhrif breytinga á veiðgjöldum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem er eins og sú sem kollegi þingmannsins, formaður Sjálfstæðisflokksins, var með hér áðan. Minnisblöðin, svo ég ítreki það og lesi einfaldlega upp sem í þeim stendur, eru unnin í flýti og sett fram með þeim fyrirvara að það þykir þörf á að framkvæma frekari greiningar til að leggja mat á áhrifin. Sú vinna hefur átt sér stað síðustu vikur og mánuði í ráðuneytinu, tekið tillit til ákveðinna atriða sem komu fram við þessa leiðréttingu. Já, jaðarverð, vissulega í botnfiski ef allar tegundir eru teknar inn. Það liggur til grundvallar minnisblaðinu. Við fórum þá leið að nota þorsk og ýsu, nægileg viðskipti á markaði hér til að staðfesta að það er markaðsverð. Uppsjávarfiskurinn, vissulega er samanburður að mörgu leyti flókinn. Við sleppum loðnu og við miðum við sömu tímabil sem var grundvöllur gagnrýninnar vegna þess að eins og þeir sem til þekkja vita er mismunandi virði í fiski eftir mismunandi tímabilum veiðinnar. Við fengum líka ráðgjöf færustu norsku hagfræðinganna í þessari grein sem staðfestu að norska verðið væri markaðsverð. Það er lágt verð, vissulega, en síðan geta allir boðið í. Þetta er markaðsverð. Þetta er leiðin sem við fórum. En mér er líka ljúft og skylt að halda því til haga að í því viku- og mánaðarlanga samráði sem við höfðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi þá spurðum við þau, þegar þau gagnrýndu þessa aðferð vegna þess að hún sýndi fram á leiðrétt verð sem hækkaði gjöldin sem þau greiða íslensku samfélagi: Þetta er besta leiðin sem við höfum til að nálgast raunverulegt verð, hafið þið aðrar leiðir? Svörin? Engin. Þannig liggur í því og þegar verið er að tala um skort á samráði þá ætla ég bara að benda á, á sama tíma og ég hafna því algjörlega að um slíkan skort sé að ræða af hálfu ráðuneytisins og þeirrar sem hér stendur, að þá gengur samráðið líka í tvær áttir og það veit hv. þingmaður.