áhrif breytinga á veiðigjaldi.
Frú forseti. Aftur þakka ég fyrirspurnina og tel rétt að árétta hið augljósa: Málið er drög. Málið er í samráði. Nú er verið að vinna úr þeim ríflega 100 umsögnum sem bárust. Það eru samtöl í gangi, hafa verið í gangi á meðan málið hefur verið í samráðsgátt. Það er verið að vinna úr umsögnum. Það er verið að skoða hvort ástæða þyki til að breyta frumvarpinu áður en það kemur hingað inn í þinglega meðferð þar sem það fer sinn gang, fær vonandi málefnalega umræðu, fer í þingnefndina, annan umsagnarfrest og síðan verður það klárað. En af því að hv. þingmaður spyr: Á að klára þetta? þá er svarið einfalt: Já.
Síðan hitt: Af hverju er ríkisstjórnin ekki í raunheimum? Ég ætla bara að segja þetta: Ríkisstjórnin er í raunheimum með almenningi. Má bjóða minni hlutanum að koma með okkur? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)