156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

gjaldtaka fyrir nýtingu á heitu vatni.

[10:53]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Það er margt í gangi hjá ríkisstjórninni í auðlindamálum. Í fréttum í vikunni var fjallað um deilur ríkisins og Landsvirkjunar varðandi rentu fyrir nýtingu auðlinda vatns og vinds í tilfelli Hvammsvirkjunar annars vegar og Búrfellslundar hins vegar. Því vil ég spyrja ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála hvernig þessari gjaldtöku verði háttað, hver staðan sé á málinu og hver framtíðarsýnin sé. Ég spyr kannski sérstaklega í ljósi þess að heita vatnið hefur að ákveðnu leyti verið undanskilið: Hver er sýn ráðherra þegar kemur að gjaldtöku fyrir nýtingu á heitu vatni, ekki síst á þjóðlendum sem eru um 40% af landinu okkar og þeim hundruðum ríkisjarða sem við eigum? Hér er ég t.d. að vísa til uppbyggingar baðlóna sem nota töluvert magn af heitu vatni yfir langan tíma, auðlind sem er í almannaeigu. Gilda að mati ráðherra sömu lögmál um rentu fyrir heita vatnið okkar og í tilfelli fyrirhugaðra samninga ríkisins við Landsvirkjun um vatnsafl og vindorku? Hvernig verður slíkri gjaldtöku fyrir heita vatnið háttað? Liggja samningar um þessi mál þegar fyrir, og heilt yfir hver er sýn ráðherra og ríkisstjórnar hvað þetta mál varðar? Ég spyr því að langtímastefnumótun hér er afar mikilvæg. Eins og hefur verið fjallað um hér í þingsal í dag er erfitt að gera breytingar eftir á. Það er miklu betra að búa vel um hnútana í upphafi.