156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

vinnubrögð stjórnarliða í nefndum.

[11:10]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Nú vill svo til að ég stýrði fundi í allsherjar- og menntamálanefnd í morgun. Ég hef stýrt fundum nefndarinnar í þessari viku og það hefur verið ánægjulegt verkefni og fundirnir hafa verið góðir. Á síðasta kjörtímabili var ég formaður efnahags- og viðskiptanefndar og þá lagði maður sig í líma við það að koma til móts við stjórnarandstöðuna í mörgum málum. Nú háttar svo til að í gær fékk allur þingheimur hér inni ályktun senda frá Félagi framhaldsskólakennara, þar sem sitja fulltrúar frá öllum framhaldsskólum, stjórnum framhaldsskólanna, samninganefndar og skólanefnda, þar sem var óskað eftir því að allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis myndi taka þennan áformaða niðurskurð á framhaldsskólastiginu til rækilegrar umfjöllunar. Ég vil fá að hrósa hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að hafa brugðist svo skjótt við á fundi nefndarinnar í morgun (Forseti hringir.) og óskað eftir að ráðherra myndi koma og eiga samtal við nefndina. Því verð ég að lýsa (Forseti hringir.) vonbrigðum með það, frú forseti, að ekki hafi verið orðið við þeirri beiðni.