156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

vinnubrögð stjórnarliða í nefndum.

[11:14]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Virðulegi forseti. Sá sem hér stendur var jafnframt á fundi allsherjar- og menntamálanefndar í morgun og ég vil bara árétta að það er ekki svo að þeirri beiðni um að fá hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir nefndina hafi alfarið verið hafnað heldur var ákveðið að taka það fyrir á næsta fundi af því að fyrir liggur m.a. að ráðuneytið ætlar að bregðast við bréfi sem kom frá Félagi framhaldsskólakennara. Sá sem hér stendur var að greiða í það félag á öllu seinasta ári og er, held ég, enn þá meðlimur þar og ég frábið mér því að það sé einhvern veginn fullyrt að okkur sé ekki annt um og tökum ekki til okkar þær mikilvægu áskoranir sem bárust frá Félagi framhaldsskólakennara í vikunni.