156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

vinnubrögð stjórnarliða í nefndum.

[11:15]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Bara eitt hérna: Þó að bréfið komi frá ráðuneytinu varðandi hagræðingartillögur og svar við ályktun Félags framhaldsskólakennara þá er ekki neitt sem kemur fram varðandi hagræðingartillögurnar sem hagræðingarhópurinn lagði til sem við höfum áhyggjur af. Ég mun bara bera þetta aftur upp eftir páska á fundi nefndarinnar. En hins vegar vil ég koma hér upp og þakka hæstv. forseta fyrir viðbrögðin. Ég geri mér grein fyrir því að við funduðum langt fram á kvöld í gær og hún hefur eflaust ekki haft tíma til þess að ræða við stjórnarþingmenn. Við búumst því við að það verði gerð bragarbót hér á og ég reikna með því að þinghaldið muni fá sinn eðlilega farveg hér í dag.