vinnubrögð stjórnarliða í nefndum.
Virðulegur forseti. Ég held að það megi að einhverju leyti skrifa á að hér er fjöldinn allur af nýjum þingmönnum sem eru nýsestir á þing. Kúltúrinn sem hér hefur myndast í þinginu í gegnum tíðina, eins og ég þekki hann, er alfarið sá að sé óskað eftir heimsókn frá ráðherra þá er við því brugðist þó að ráðherra hafi kannski komið mánuði áður eða tveimur. Ég minni á það að í fyrra og hittiðfyrra var utanríkisráðherra nánast ja, hann var tvisvar í mánuði að heimsækja utanríkismálanefnd og ég er nokkuð viss um að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra mun bregðast fúslega við því að koma og ræða þetta mál og fjölmörg önnur sem eru brýn í þessum efnum. Þannig að gott og vel, örlítið reynsluleysi er fyrirgefið og meðtekið.
En ég vildi líka koma á framfæri því sem ég gerði stuttlega í morgun, að hin annars ágæta hugmynd um gjaldfrjálsar skólamáltíðir hefur bitnað verulega á gæðum skólamáltíða með þeim hætti að börnin borða ekki lengur skólamáltíðirnar heldur þarf að kaupa mat handa þeim dýrum dómi strax eftir skóla svo að blóðsykursfall (Forseti hringir.) verði þeim ekki til trafala. Ég vil biðja um að þetta verði tekið fyrir á næsta fundi.