156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[11:20]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir að bregðast við og fá til sín fleiri gesti í þessu máli sem ég vona að hafi veitt þingmönnum betri innsýn í stöðu mála og muni hafa áhrif í frekari vinnu þessara mála. Þó að við samþykkjum þetta mál sem lagt er til hér í dag, sem er mjög mikilvægt fyrir fasteignaeigendur í Grindavík sem geta ekki nýtt fasteignir sínar, þá breytir það ekki að hinn hluti málsins er óleystur enn þá og engin áform eða svör frá ríkisstjórninni varðandi þann hlut, fjárhagsstöðu Grindavíkurbæjar og hvernig uppbyggingin á að geta hafist og hvernig á að bregðast við þeim tekjum sem Grindavíkurbær verður af með því að fresta álagningu fasteignagjalda. Ég vona að við getum þá tekið á því í því máli sem er inni í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og ég kalla bara eftir svörum frá hæstv. ríkisstjórn í þessu máli.